Ekki nauðsynlegt að gera neitt 23. mars 2005 00:01
Fimm daga frí um páska býður upp á skemmtilega skreppitúra út fyrir bæinn og Gullfoss og Geysir eru alltaf freistandi kostur fyrir höfuðborgarbúa. Það gæti þó verið tilvalið að gera meira úr ferðinni og á Gullfossi er fallegt hótel sem býður upp ljúfa gistingu fjarri ys og þys borgarinnar. "Við leggjum aðaláherslu á rólegheit, því okkur finnst ekki nauðsynlegt að fólk sé endilega að gera einhvern helling. Stundum er best að slaka bara á í fallegu umhverfi og láta líða úr sér, ekki veitir fólki af," segir Lára Ágústsdóttir hótelstýra. "Það þarf hins vegar engum að leiðast hér á Gullfossi, hér eru fallegar gönguleiðir allt um kring og fjórhjólaleiga í næsta nágrenni, svo eitthvað sé nefnt. Við vonum að fólk komi og njóti þess að láta dekra við sig en hér bjóðum við upp á fínar veitingar og nuddpotta við hótelið og svo eru góðar sundlaugar steinsnar í burtu." Á hóteli Gullfossi eru 16 herbergi með baði og sjónvarpi en hótelið hefur nýlega sett á laggirnar heimasíðuna hotelgullfoss.is
Ferðalög Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira