Fjölbreyttara framhaldsnám 16. mars 2005 00:01
Námsframboð í Háskólanum á Akureyri hefur verið að aukast síðustu misseri. Skólinn var stofnaður árið 1987 og voru tvær deildir starfræktar í upphafi, hjúkrunarfræði og iðnrekstrarfræði. Á þeim tíma voru aðeins 30 nemendur í skólanum og fjórir fastráðnir kennarar. Undanfarin ár hefur líf háskólans eflst til muna og eru nú um 1500 nemendur í sex deildum og um 160 fastráðnir kennarar. Um 40% nemenda skólans stunda fjarnám. Markmið Háskólans á Akureyri er að búa nemendur undir nám, störf og rannsóknir í innlendu og alþjóðlegu umhverfi. Upplýsingatækni við skólann er með besta móti og er ætlast til að nemendur tileinki sér hana við námið og noti netið til samskipta og upplýsingaöflunar. Jóna Jónsdóttir, forstöðumaður samskiptamiðstöðvar Háskólans á Akureyri, segir mikla áherslu lagða á hópavinnu. "Nemendur í öllum deildum eru þjálfaðir í því að vinna í hópum, skrifa skýrslur og skila þeim. Síðan er þeim skylt að standa upp og rökstyðja sitt mál fyrir kennurum og nemendum. Þetta er sú umgjörð sem við höfum verið með til þess að nemendur læri að vinna saman," segir Jóna. Fjölgun nemenda hefur gert það að verkum að stækkun skólans varð að veruleika. Fyrir örfáum árum fór kennslan fram á nokkrum stöðum í bænum en með tilkomu nýja rannsóknarhússins á Sólborg hefur kennslan færst svo til á einn stað. Kennaradeildin er þó enn í húsnæði skólans við Þingvallastræti. Nýja rannsóknarhúsið sem tekið var í notkun í vetur hefur staðið undir væntingum en þar fer fram kennsla í auðlindadeild og upplýsingatæknideild. "Húsið á eftir að sanna sig enn meira á komandi árum. Við stefnum að því að efla deildirnar sem fyrir eru og þá helst framboð á framhaldsnámi," sagði Jóna. Háskólinn á Akureyri hefur sótt í sig veðrið sem öflug menntastofnun á landsbyggðinni. "Með öflugu rannsóknarstarfi erum við að laða að okkur mjög vel menntaða kennara úr öllum greinum hvaðanæva úr heiminum. Þá er ekki hvað síst hversu áhugi Akureyringa hefur vaxið á starfi skólans og við höfum fengið góða og vel menntaða einstaklinga héðan úr bænum til að vinna með okkur."Mikil áhersla er lögð á hópavinnu í Háskólanum á Akureyri.
Nám Mest lesið Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Með stóra drauma og svarta beltið í taekwondo Lífið Fréttatía vikunnar: Landsfundur, körfubolti og geimferðir Lífið Dýrmætt að fá að hitta hetjurnar á hinum enda línunnar Lífið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lífið samstarf Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira