Bættar samgöngur á Norðurlandi 11. mars 2005 00:01 Umræður um bættar samgöngur milli Akureyrar og Reykjavíkur hafa verið ofarlega á baugi á undanförnum vikum í tengslum við Norðurveg þann sem Halldór Blöndal alþingismaður hefur lagt fram hugmyndir um. Reyndar hefur flokksbróðir hans sjálfur samgönguráðherrann lýst sig andvígan hugmyndinni af margvíslegum ástæðum og nú hefur fulltrúi Vegagerðarinnar sagt skoðun sína á málinu. Þar eru taldar upp helstu röksemdir fyrir lagningu Norðurvegar og einnig farið nokkrum orðum um núverandi hringveg og nauðsynlegar umbætur á honum. Niðurstaða Rögnvaldar Jónssonar, framkvæmdastjóra hjá Vegagerðinni, er sú að enn sé langt í það að vegakerfi okkar verði sambærilegt við það sem er í nágrannalöndunum, og að það muni ekki auðvelda það verkefni að bæta vegina að fjölga leiðunum á landinu. Þarna er Vegagerðin sem sé að lýsa andstöðu sinni við Norðurveg Halldórs Blöndal. Sá vegur myndi að vísu stytta leiðina á milli Akureyrar og Reykjavíkur, en hann myndi fyrst og fremst koma þeim til góða sem eiga leið þar á milli og þeim sem væru á leið milli Skagafjarðar og höfuðborgarsvæðisins. Þéttbýli og dreifbýli i Húnaþingi myndi hins vegar bera skarðan hlut frá borði við þessar vegaframkvæmdir, eins og Húnvetningar hafa vakið athygli á. Tekið skal undir með Vegagerðinni að það virðist margt þarfara varðandi úrbætur í vegamálum en að leggja Norðurveg hátt yfir sjávarmáli fyrir milljarða króna. Hins vegar mega menn sem vilja bættar vegasamgöngur milli Norður- og Suðurlands og milli þéttbýlisstaða á Norðurlandi ekki láta slá sig út af laginu því vissulega er þörf á betri vegum, að stytta leiðir og gera veggöng í stað þess að fara yfir fjallgarða eins og um Öxnadalsheiði. Í þessu skyni hafa þrjú sveitarfélög á Norðurlandi, Skagafjörður, Skagaströnd og Blönduósbær, lagt fram tillögur um rannsóknir eða úttekt á bættum samgöngum vestan frá Húnaflóa til Akureyrar og austur um til Húsavíkur. Hafa þau sótt um rannsóknastyrk til verkefnisins og nefna veginn Norðurbraut. Hugmyndin er þá að hinn nýi vegur um Þverárfjall yrði vestasti hluti Norðurbrautar sem síðan lægi um Sauðárkrók og yfir Hegranes austur í Hjaltadal og í göngum yfir í Barkárdal, síðan um Hörgárdal til Akureyrar. Þetta myndi stytta leiðina frá Sauðárkróki til Akureyrar um 30 kílómetra og jafnframt myndu menn sleppa við að fara um Öxnadalsheiði. Nýi vegurinn um Þverárfjall hefur þegar sannað sig þótt ekki sé enn búið að ganga frá honum Sauðárkróksmegin. Á síðasta ári fóru 70 þúsund bílar um veginn, eða nærri 200 á dag að meðaltali. Bættar samgöngur auka samskipti milli manna og eru oft á tíðum forsenda fyrir margskonar starfsemi, ekki aðeins á sviði verslunar og viðskipta heldur ekki síður varðandi menningu og listir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fastir pennar Kári Jónasson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun