Dómurinn fól í sér stefnubreytingu 28. febrúar 2005 00:01 "
Jafnréttislögin hafa verið afgreidd frá Alþingi fjórum sinnum og alltaf er talað um að sömu laun eigi að fást fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf en aldrei útskýrt nánar hvernig beri að skilja það orðalag," segir Ása. Tekur hún þó fram að við síðustu afgreiðslu laganna, árið 2000, hafi því verið bætt við að samanburðurinn gilti hjá sama atvinnurekanda. Hún telur greinilegt að boltanum sé varpað yfir til dómstóla og úrskurðarnefnda. Það sé á þeirra könnu að bera saman störfin. "Málin sem ég skoðaði skiptast í fjóra flokka," segir Ása. "Í fyrsta flokknum var um nákvæmlega sömu störf að ræða. Í öðrum flokknum voru staðgenglar settir á lægri laun en starfsmennirnir sem þeir voru að leysa af. Í þriðja flokknum voru tilfellin innan sömu stéttar þó um mismunandi störf væri að ræða en í fjórða flokki var farið út fyrir stéttina og störfin voru því ekki á sama sviði." Ása segir síðastnefnda flokkinn mest til umræðu núna. Í honum hafi fallið tveir hæstaréttardómar, einn héraðsdómur og fjögur álit kærunefndarinnar. Í öllum tilfellum hafi sönnunarbyrðinni verið varpað yfir á atvinnurekandann. "Það var sem sagt atvinnurekandinn sem varð að sýna fram á að störfin sem um ræddi væru ekki jafnverðmæt og sambærileg," útskýrir Ása. En telur hún að svona mál verði alltaf að fara dómstólaleið? "Þegar Jóhanna Sigurðardóttir mælti fyrir jafnréttislögunum á Alþingi 1991sem félagsmálaráðherra lýsti hún því yfir að reglugerð væri í smíðum þar sem ætti að skilgreina hvað væru jafnverðmæt og sambærileg störf. En þessi reglugerð var aldrei búin til. Menn hafa bara beðið eftir því að hvert mál fyrir sig dúkkaði upp. Þetta er því allt í mótun. En það varð stefnubreyting í Akureyrardómnum þegar störf innan ólíkra stétta voru borin saman hvað varðaði ábyrgð, inntak og ytri búnað."
Atvinna Mest lesið Edrú í sorg: Sonarmissir, á hnefanum og eiginkonan hættir að anda Áskorun „Enginn skömm af því að leita sér hjálpar“ Lífið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr Lífið Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Lífið Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Lífið Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Lífið Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Lífið „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Fleiri fréttir Settu tærnar upp í loft og fengu knús „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira