Borgin hafnar túlkaþjónustu 22. febrúar 2005 00:01
Borgaryfirvöld hafa hafnað beiðni Félags heyrnarlausra um að viðurkennd verði skylda Reykjavíkurborgar til að tryggja endurgjaldslausa túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa foreldra grunnskólabarna. Hafdís Gísladóttir, framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra, segist ekki sætta sig við niðurstöðuna. Líklega verði farið með málið fyrir dómstóla. Í umsögn Kristbjargar Stephensen, skrifstofustjóra á skrifstofu borgarstjóra, segir að síðastliðið haust hafi Fræðslumiðstöð ákvarðað um að borgin greiddi ekki fyrir túlkaþjónustu fyrir heyrnalausa eða heyrnarskerta foreldra. Því væri litið á erindið frá Félagi heyrnarlausra nú sem beiðni um endurupptöku þeirrar ákvörðunar. Félag heyrnarlausra telur að samkvæmt grunnskólalögum verði borgaryfirvöld að tryggja rétt foreldra til að fylgjast með málum barnanna gagnvart skólanum. Óheimilt sé að boða til foreldrafunda sem heyrnarlausum foreldrum sé ókleift að sækja vegna þess að engin túlkaþjónusta sé fyrir hendi. Máli sínu til stuðnings vísar félagið einnig til jafnréttisákvæðis stjórnarskrárinnar. Borgarráð hefur fjallað um málið og samþykkt umsögn Kristbjargar en í henni kemur fram að ekki sé skilyrði fyrir því að taka málið upp að nýju.
Borgarstjórn Fréttir Innlent Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Fleiri fréttir Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Sjá meira