Allir geta lært að teikna 12. janúar 2005 00:01 "
Fólk áttar sig oft ekki á því að það geta allir lært að teikna," segir Ásta Ólafsdóttir sem kennir fullorðnum myndlist hjá Mímir símenntun. Námskeiðið er ætlað öllum sem einhverja ánægju hafa af myndlist og vilja læra að teikna, nota liti, læra um fjarvídd og fleira. "Í námskeiðinu ætla ég að veita innsýn inn í allt sem viðkemur grunnatriðum myndlistar. Þetta verður ekki flóknara en það að við byrjum á að teikna línu en allir fara heim með fullunnar teikningar og málverk í lok námskeiðsins. Við munum ræða hvaða litir eru grunnlitir og hvernig við blöndum liti til að fá út aðra liti," segir Ásta og bætir við að fólk verði aldrei fullnuma í myndlist frekar en annari list. "Það er sama hvort þú ert með próf frá flottum skóla, þú getu alltaf lært meira. Teikning er stöðug æfing, þetta er eins og í líkamsþjálfun, þú ert aldrei búin að læra svo mikla leikfimi að þú þurfir aldrei aftur að mæta." Lestu ítarlegra viðtal við Ástu og skoðaðu fleiri hugmyndir að skemmtilegum námskeiðum í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira