Almenningur móti stjórnarskrána 4. janúar 2005 00:01 Ný stjórnarskrárnefnd er um það bil að taka til starfa. Verkefni hennar hefur ekki verið skilgreint nákvæmlega en virðist eiga að vera svo opið að það geti falið í sér heildarendurskoðun á grundvallarþáttum stjórnskipunar lýðveldisins svo sem valdi og valdmörkum forseta og þings. En hvort sem nefndin fer þá leið að endurskoða stjórnarskrána í heild eða einbeitir sér að afmörkuðum þáttum er ljóst að verkefnið verður í sviðsljósinu næstu mánuði og misseri. Ekki dregur úr athyglinni að helstu forystumenn stjórnmálaflokkanna hafa lýst þeim ásetningi að sitja í nefndinni og gefa starfi hennar þannig aukið vægi. Viðvera þeirra og bein afskipti munu leiða til þess að stjórnarskrármálið verður mál málanna í íslenskum stjórnmálum. Hinn 8. desember síðastliðinn var á þessum vettvangi í blaðinu hvatt til þess að þjóðinni allri yrði gefið tækifæri til þess að hafa áhrif á hina fyrirhuguðu endurskoðun: "Hugsa má sér að stjórnarskrárnefndin opni í þessu skyni vefsíðu þar sem tekið verði á móti tillögum og staðið fyrir umræðum um stjórnarskrármálið. Opinber málþing um einstaka þætti í vinnu stjórnarskrárnefndar eru einnig æskileg. Slík vinnubrögð gera vissulega miklar kröfur um röskleika og markvisst skipulag en tryggja um leið að niðurstaðan, hver sem hún verður, eigi víðtækan hljómgrunn í þjóðfélaginu. Á engan hátt væri verið að taka ábyrgð, frumkvæði og endanlegt vald frá stjórnarskrárnefndinni og Alþingi. Hér er tækifæri til að efla og bæta lýðræði á Íslandi." Ánægjulegt var að heyra Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra taka undir þetta viðhorf í áramótaávarpi sínu að kvöldi gamlársdags. Orðrétt sagði ráðherrann: "Ég hvet til þess að við fjöllum um þetta stóra og mikilvæga verkefni af gætni og virðingu. Með nútíma samskiptatækni og fjölbreytni í fjölmiðlun er hægt að tryggja að sem flestir landsmenn geti lagt hönd á plóginn auk þess sem haldnir verði fundir og ráðstefnur um einstaka þætti stjórnarskrárinnar. Þetta er sameiginlegt verkefni okkar allra og niðurstaðan á að endurspegla þjóðarvilja." Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, staðfesti í samtali við Fréttablaðið í gær að þetta fæli meðal annars í sér að stofnuð yrði netsíða á vegum stjórnarskrárnefndar og tölvu- og samskiptatækni virkjuð til að auðvelda fólki að kynna sér starf hennar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Er vonandi að þetta gangi eftir og sem flestir áhugamenn um stjórnmál notfæri sér þennan vettvang. Stjórnmál á Íslandi hafa of lengi að mestu verið einskorðuð við ýmiss konar dægurþras. Atburðir síðustu mánaða hafa með óvæntum hætti sett grundvallaratriði og meginsjónarmið á dagskrá. Tími var til kominn og vonandi ber þjóðin gæfu til að vinna vel úr þeim tækifærum sem nú skapast. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fastir pennar Guðmundur Magnússon Mest lesið Manneklan er víða Brynhildur Bolladóttir Skoðun Suður-Íslendinga sögurnar Hans Birgisson Skoðun Hættulegustu tækin í umferðinni Eva Hauksdóttir Skoðun Hækka launin þín þegar fasteignamatið á íbúðinni þinni hækkar? Daði Freyr Ólafsson Skoðun Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun Hvað myndi Sesselja segja? Hallbjörn V. Fríðhólm Skoðun Þegar sannleikurinn verður fórnarlamb Davíð Bergmann Skoðun Velkomin til Helvítis Guðný Gústafsdóttir Skoðun Hafrannsóknastofnun leggur til 95 prósent samdrátt í sjókvíaeldi á laxi Jón Kaldal Skoðun Hvað mun Pútín gera næst með því að ögra samstöðu NATO?: Rússnesk innrás í lofthelgi NATO og hlutverk Íslands í öryggi bandalagsins Jun Þór Morikawa Skoðun
Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun
Hvað mun Pútín gera næst með því að ögra samstöðu NATO?: Rússnesk innrás í lofthelgi NATO og hlutverk Íslands í öryggi bandalagsins Jun Þór Morikawa Skoðun
Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun
Hvað mun Pútín gera næst með því að ögra samstöðu NATO?: Rússnesk innrás í lofthelgi NATO og hlutverk Íslands í öryggi bandalagsins Jun Þór Morikawa Skoðun