Ný sinfóníuhljómsveit stofnuð 14. desember 2004 00:01
Aðstandendur tónleika með Placido Domingo, sem haldnir verða í Egilshöll í mars, eru að stofna heila sinfóníuhljómsveit til undirleiks við söngvarann. Alfreð Alfreðssson, sem vinnur að undirbúningi, segir að það gangi ótrúlega vel að ná saman góðum hljóðfæraleikurum. Þetta sé í rauninni uppvakning á sinfóníuhljómsveit sem Garðar Cortes hafi stofnað á sínum tíma en hefur legið niðri árum saman. Í þeirri hljómsveit séu bæði hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands og utan hennar og hefur hún hlotið nafnið Sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur. Að sögn Alfreðs reyndist of dýrt að fá Sinfóníuhljómsveit Íslands til að spila á tónleikunum. Það hefði t.a.m. verið fjórfalt dýrara en tónleikar Jose Carreras kostuðu á sínum tíma. Alfreð segir að þetta sé þó allt gert í góðu og engin leiðindi séu á milli hljómsveitarinnar og tónleikahaldara. Spurður hvort ekkert mál sé að stilla upp nýrri sinfóníuhljómsveit sem sæmi söngvara á borð við Domingo segir Alfreð svo ekki vera. Æfingar eru ekki byrjaðar en hefjast innan skamms og að sögn Alfreðs er ekki loku fyrir það skotið að hljómsveitin spili við fleiri tilefni að loknum tónleikum Domingo.
Tónlist Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira