Ökumaðurinn líklega fundinn 7. desember 2004 00:01
Lögreglan í Keflavík telur sig vera búna að finna manninn sem ók niður konu í Sandgerði fyrir tæpri viku og stakk af. Konan var á leið heim til sín að loknum vinnudegi þegar ekið var á hana á Strandgötu. Hún slasaðist talsvert, var rænulítil þegar að var komið og var hún flutt á slysadeild Landspítalans og síðan lögð inn á spítalann. Síðan hefur lögreglan haldið uppi víðtækri eftirgrennslan, enda telur hún nær ómögulegt að ökumaður hafi ekki orðið var við að aka á eitthvað. Eftir viðtöl við fjölda fólks fór hringurinn að þrengjast utan um tiltekinn bíl og var eigandi hans kallaður til yfirheyrslu og bíllinn skoðaður. Skemmdir eru á bílnum, sem hugsanlega má rekja til þess að rekast á konuna, og ökumaður viðurkennir að hafa verið á ferð á þeim stað og þeirri stundu sem slysið varð. Eftir því sem fréttastofan kemst næst segist hann hins vegar ekki vita til þess að hafa ekið á konuna, en þó hafi hann rekist á eitthvað. Málið er því enn í rannsókn þótt yfirgnæfandi líkur bendi til þess að ökumaður og bíll séu fundnir. Konan er á batavegi.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira