R-listinn svíkur kosningaloforð 4. desember 2004 00:01
Jólagjöf R-listans til borgarbúa er skatta- og gjaldahækkun, þvert ofan í loforð, sem kosta mun fjölskyldufólk tugi þúsunda á næsta ári. Þetta segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Vilhjálmur gefur lítið fyrir yfirlýsingar um auknu þjónustu og lækkaðar skuldir. Þetta hafi R- listinn sagt ár eftir ár en staðreyndirnar sýndu annað. Fjárhagsáætlanir R-listans hafi sjaldan staðist undanfarin ár, skuldirnar hækkuðu og nú væri búið að hækka álögur á borgarbúa til að mæta þeim. Vilhjálmur segir að hvort sem litið sé til Reykjavíkurborgar og fyrirtækja í eigu borgarinnar, eða borgarsjóðs eingöngu, þá sýndu tölur að skuldir hefðu aukist. Hann gagnrýnir hækkaða útsvarsprósentu og bendir á að Reykjavíkurlistinn sagðist ekki ætla að hækka skatta fyrir síðustu kosningar. Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, gagnrýnir orð borgarstjóra í fréttum Stöðvar 2 í gær og segist hljóta að telja þau tilraun til að slá ryki í augu kjósenda og breiða yfir verulega skatta- og gjaldskrárhækkanir R-listans í Reykjavík. Þá sagði borgarstjóri að á Seltjarnarnesi hefðu þjónustugjöld hækkað sem bitnaði frekar á fjölskyldufólki en útsvarsprósentu.
Borgarstjórn Fréttir Innlent Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Innlent Áfram bongó í kortunum og nú um allt land Veður Fleiri fréttir Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Sjá meira