Harma ásakanir á embættismenn 27. október 2004 00:01
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og byggingarnefnd fengu ekki að leggja fram bókun í nefndinni í gær, þar sem ásakanir R-listans á einstaka embættismenn borgarinnar í fjölmiðlum voru harmaðar. Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að bókuninni hafi verið vísað frá. Hann ætli hins vegar að leggja hana fram í borgarráði í dag. Málið á rætur sínar að rekja til þess þegar Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi R-listans og formaður skipulags- og byggingarnefndar, sagði í viðtali við Fréttablaðið að vegna mistaka við gerð aðalskipulags hefði Nóatún fengið að opna verslun við Þjóðhildarstíg í Grafarholti. Hún sagði: "Embættismenn skipulags- og byggingarsviðs gerðu þessi mistök þegar verið var að samþykkja nýtt aðalskipulag." Guðlaugur Þór segir að sambærileg mál hafi komið upp varðandi bensínstöð við Staldrið. Hann segir sjálfsagt að stjórnmálamenn takist á í fjölmiðlum og annars staðar en starfsfólk borgarinnar eigi ekki að þurfa að verða fyrir árásum frá pólitískum yfirmönnum sínum á opinberum vettvangi. R-listinn axli ábyrgðina á mistökunum í Grafarholti.
Borgarstjórn Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Fleiri fréttir Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Sjá meira