Ákvörðun sem orkar tvímælis 3. október 2004 00:01 Með Jóni Steinari Gunnlaugssyni prófessor hefur Hæstarétti Íslands bæst dómari sem meðal lögmanna og annarra sem fylgjast með lögmennsku og dómstólum er þekktur fyrir glöggskyggni og skýran og skilmerkilegan málflutning og trausta lagaþekkingu. Hann hefur ennfremur margra áratuga reynslu af lögmannsstörfum en Félag lögmanna hefur margsinnis kvartað yfir því að slíka þekkingu skorti í réttinn. Þá er ljóst að margir lögmenn telja að óhefðbundin nálgun Jóns Steinars að ýmsum viðfangsefnum dómstólanna sé holl fyrir réttarkerfið í landinu. Það þurfi að "hrista upp" í Hæstarétti. Þetta felur þó ekki í sér að að skipun Jóns Steinars í dómaraembættið sé tekið fagnandi af lærðum og leikum. Öðru nær eins og þeir vita sem fylgjast með fjölmiðlum. Fyrirsjáanlegar voru þær athugasemdir að settur dómsmálaráðherra hafi átt að taka tillit til umsagnar Hæstaréttar sem mælti með öðrum umsækjendum. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins virðir meðmæli Hæstaréttar að vettugi. Ekki er nema eðlilegt að spurt sé til hvers hin lögbundna umsagnarskylda sé ef ekkert tillit er til hennar tekið. Þá mátti einnig segja sér að gengi ráðherra aftur framhjá hæfum kvenumsækjanda um embættið yrði að því fundið með vísan til jafnréttislaga. Sem kunnugt er eru aðeins tveir af níu dómurum Hæstaréttar kvenkyns og starfslok annars þeirra blasa við innan tveggja ára. Loks kemur ekki á óvart að skipun Jóns er af mörgum gagnrýnendum talin pólitísk. Hann hefur um langt árabil verið meðal mest áberandi þátttakenda í þjóðfélagsumræðunni og verið einhver ákveðnasti málsvari Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, sem er náinn vinur hans. Þegar fréttist að Jón Steinar sækti um embætti hæstaréttardómara varð það útbreidd skoðun í þjóðfélaginu að hann fengi embættið vegna vináttu við ráðamenn og starfa fyrir þá óháð því hvert yrði faglegt mat á hæfni hans. Formaður Samfylkingarinnar klappaði þennan stein í fjölmiðlum í gær þegar hann gaf í skyn að Jón Steinar væri beinlínis "sendur" í réttinn til að hafa áhrif á niðurstöður hans í þágu lagasjónarmiða sem væru á undanhaldi í Hæstarétti en nytu velvildar ríkisstjórnarinnar. Pólitískt eðli málsins varð einnig ljóst af þeim upplýsingum Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra að hann hefði séð ástæðu til að ræða dómaraskipunina við forystumenn Sjálfstæðisflokksins áður en ákvörðun var tekin. Þau ummæli sem mesta athygli vekja þó eftir að skipunin varð heyrinkunnug í gær eru orð keppinautar Jóns Steinars, Eiríks Tómassonar prófessors. Hann kvað dómsvaldið í landinu ekki lengur sjálfstætt og óháð framkvæmdavaldinu eftir að tvívegis hefði verið gengið gegn umsögn Hæstaréttar. Þetta eru stór orð og þung þegar jafn virtur lögfræðingur á í hlut. Hvað sem ótvíræðum lögmannshæfileikum Jóns Steinars Gunnlaugssonar líður verður að telja að ákvörðun setts dómsmálaráðherra um að skipa hann dómara að þessu sinni orki tvímælis í ljósi þeirra athugasemda sem hér hafa verið reifaðar. Þetta mál og skipun Ólafs Barkar Þoraldssonar í fyrra sýnir að núverandi háttur á skipan dómara í Hæstarétt er genginn sér til húðar. Alþingi þarf þegar í haust að taka þennan þátt dómstólalaganna til rækilegrar endurskoðunar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fastir pennar Guðmundur Magnússon Mest lesið Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Ofbeldislýður í sauðagæru Huginn Þór Grétarsson Skoðun ASÍ er látið niðurgreiða laun formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Aðför að einkabílnum hættir? Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Íslenska sem annað mál í Ísafjarðarbæ – spurningar til allra frambjóðanda til sveitastjórnarkosninga vorið 2026 Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun Ég er ekki torfkofamatur Rakel Hinriksdóttir Skoðun Hvert stefnir Bláskógabyggð? Valdís María Smáradóttir Skoðun Blár, rauður, gulur og C+ Jón Pétur Zimsen Skoðun Brothætta karlmennskan sem óttast regnbogafána Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Takk fyrir lánið, Elliðaárdalur! Heiða Aðalsteinsdóttir Skoðun
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Íslenska sem annað mál í Ísafjarðarbæ – spurningar til allra frambjóðanda til sveitastjórnarkosninga vorið 2026 Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Íslenska sem annað mál í Ísafjarðarbæ – spurningar til allra frambjóðanda til sveitastjórnarkosninga vorið 2026 Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun