Talaðu þig á toppinn 23. júlí 2004 00:01
Það sem þú segir og hvernig þú segir það getur annað hvort komið þér á botninn eða á toppinn í vinnunni. Nýleg könnun leiðir það í ljós að nærri helmingur vinnandi fólks telur að félagsleg hegðun fólks á vinnustað sé stærsti þátturinn í orðspori þeirra í vinnu. Rúmlega þrjátíu prósent halda því svo fram að hegðun starfsmanns á meðan yfirmaðurinn er fjarri spili líka stóran þátt. 567 einstaklingar tóku þátt í könnuninni, allir átján ára eða eldri og í fullu starfi. Spurning í könnun: Hvað af eftirtöldu spilar stærstan þátt í orðspori starfsmanns á vinnustað? Samskiptastíll 49 prósent Hvernig manneskja hagar sér í fjarveru yfirmanns 31 prósent Hve oft leitað er til manneskjunnar með vandamál 15 prósent Snyrtimennska 3 prósent Annað 1 prósent Óviss 1 prósent Ráð til að bæta samskipti á vinnustaðnum: Hafðu það stutt og laggott. Hvort sem það er tölvupóstur eða fundur þá ættirðu að hafa allar athugasemdir stuttar og hnitmiðaðar. Fólk sem hefur nóg fyrir stafni kann að meta hnitmiðað og röskt fólk. Vertu kurteis. Ekki gleyma að þakka fyrir þig og hjálpaðu þeim sem þarfnast aðstoðar. Ef þú hjálpar fólki þá mun það hjálpa þér. Passaðu málfarið. Vandaðu þig við tölvupóstssmíði og veldu orðin vel. Gerðu það alveg ljóst hvað þú vilt eða þarfnast og lestu síðan skilaboðin yfir einu sinni eða tvisvar, bæði með hjálp tölvunnar og augna þinna. Hlustaðu. Gefðu þeim sem þú talar við þína óskertu athygli. Ekki klára setningar annara eða grípa frammí fyrir fólki.
Atvinna Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Risastór tappakollur í fallegri íbúð Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Fleiri fréttir Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira