Fiskur sem ég get treyst 7. júlí 2004 00:01
Hallveig Thorlacius borðar mikinn fisk og þegar hún fer til útlanda er það fiskurinn og sundlaugarnar sem hún saknar mest. Á Íslandi finnur hún þetta tvennt mjög nálægt hvort öðru, hún syndir í Laugardalslauginni og kaupir svo fisk á eftir: "Fiskbúðin mín á Sundlaugarveginum er alveg rosalega góð og þar fæst fiskur sem maður getur algerlega treyst. Ég treysti mér ekki til að fara út í verðsamanburð við aðrar fiskbúðir en mér finnst ég gera góð kaup að því leyti að fiskurinn er alltaf fullkomlega ferskur og úrvalið er gott og mikið. Svo bjóða þeir líka upp á ýmsar smávörur svo sem rúgbrauð, egg og kartöflur og þeir passa alltaf upp á að allt sé svo gott. Starfsfólkið er mjög indælt, hressir ungir menn sem hafa skoðun á öllu milli himins og jarðar. Ég held að búðin sé svona góð af því að þeir eru svo duglegir að fara snemma á fætur og keyra langa leið til að sækja besta fiskinn." Er Hallveig ekkert feimin við að ljóstra upp leyndarmálinu sínu um fiskbúðina góðu? "Mér sýnist nú að hálf þjóðin viti nú þegar af henni. Ég hitti fólk í þessari fiskbúð sem ég veit ekki betur en að eigi heima hinum megin í bænum og þegar ég spyr hvort það sé flutt í hverfið þá segir það nei, þetta er bara besta fiskbúð í bænum."
Fjármál Mest lesið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Meghan snýr aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lífið Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Lífið samstarf Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira