Golfinn hlaut tólf stjörnur 25. júní 2004 00:01
Nýjustu niðurstöður úr Euro NCAP lágu fyrir í vikunni. Samkvæmt þeim er nýr Volkswagen Golf öruggasti bíllinn sem prufaður hefur veið í árekstrarprófununum Euro NCAP. Enginn annar fólksbíll hefur náð jafngóðri heildarniðurstöðu varðandi kröfur um öryggi í árekstri, vernd fótgangandi og vernd barna. Nýi Golfinn fékk fimm stjörnur, hæstu mögulegu einkunn, fyrir vernd farþega í prófunum á hliðarárekstrum og ákeyrslum. Tólf bílar voru prófaðir í vor og nýi Golfinn fékk einn bíla fjórar stjörnur fyrir vernd barna og þrjár stjörnur fyrir vernd fótgangandi. Golfinn fékk alls tólf stjörnur en enginn annar bíll náði þeim árangri. Þennan góða árangur má þakka sérstaklega vel styrktu farþegarými og mjög skilvirkum verndar- og neyðarkerfum. Golf fékk fullt hús stiga fyrir vernd barna vegna Isofix-festipunkta í barnasætinu og efri sætisólar í því. Verði gangandi vegfarandi fyrir bílnum draga sveigjanleg svæði framan á bílnum og gúmmílisti í framstuðara umtalsvert úr hættu á meiðslum.
Bílar Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Loni Anderson er látin Lífið Áferðarfallegir en óeftirmennilegir fjórmenningar Gagnrýni Calvin Harris orðinn faðir Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira