Heimsmarkmiðin

COVID-19: Tæplega 28 milljónir til að draga úr útbreiðslu í Afríku og Miðausturlöndum
Rauði krossinn á Íslandi ákvað í dag, með rausnarlegum stuðningi utanríkisráðuneytisins, að veita tæpum 28 milljónum til aðgerða Alþjóða Rauða krossins í baráttunni við COVID-19 vírusinn í Afríku og Miðausturlöndum.

Síðasti áratugur sá hlýjasti í sögunni
Í nýrri skýrslu Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar um stöðu loftslagsmálai eru staðfestar bráðabirgðaniðurstöður sem lagðar voru fram á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember síðastliðnum sem sýndu að árið 2019 var næst heitasta ár frá upphafi mælinga.

Sérfræðingar frá Perú og Kólumbíu væntanlegir í Jarðhitaskólann
Perú hefur töluverðan fjölda af jarðhitasvæðum og góða möguleika á nýtingu jarðhita til húshitunar og orkuframleiðslu. Þörfin er einnig mikil og þá sérstaklega í háfjallaþorpum í Andesfjöllunum þar sem um 200 manns deyja árlega úr kulda,“ segir Málfríður Ómarsdóttir umhverfisfræðingur Jarðhitaskóla GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu.

Pekingsáttmálinn ítrekaður og staðfestur á ný
Árlegur fundur kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York er fámennur að þessu sinni vegna kórónaveirunnar. Aðeins fastanefndir ríkjanna ásamt kvennasamtökum í New York taka þátt í fundinum í ár.

Nýtt heimsátak í jafnréttisbaráttunni: Jafnréttiskynslóðin
UN Women hefur hleypt af stokkunum nýju heimsátaki með yfirskriftinni: Jafnréttiskynslóðin (Generation Equality).

Tæplega ein milljón flúið í Sýrlandi á síðustu þremur mánuðum
Tæplega ein milljón manna hefur neyðst til að flýja heimili sín í Sýrlandi frá byrjun desember á síðasta ári, á síðustu þremur mánuðum. Ástandið í norðvesturhluta landsins hefur aldrei verið verra en einmitt nú samkvæmt skýrslu Save the Children. Börn eru 60 prósent flóttafólks, þau eru helstu fórnarlömb átakanna og á fyrstu tveimur mánuðum ársins féllu 77 börn á átakasvæðum.

Þörf á að breyta viðhorfi og hegðun gagnvart stúlkum
Framfarir í menntun, og sú staðreynd að fleiri stelpur en nokkru sinni fyrr ljúka grunnskóla og halda áfram námi, hefur ekki marktækt breytt því að stelpur búa enn við ójöfnuð og ofbeldi.

Vill hefja kartöflurækt en á ekki fyrir útsæði
Utanríkisráðuneytið veitti á dögunum Creditinfo Group hf. tæplega 23 milljóna króna styrk til verkefnis í Vestur-Afríku sem snýst um að vinna lánshæfisgreiningar fyrir smáfyrirtæki og einyrkja í því skyni að bæta aðgengi eigenda þeirra að lánsfé.

Neyðarfjármagn frá Alþjóðabankanum vegna COVID-19
Í ljósi þess að kórónaveiran breiðist hratt út um heiminn og hefur þegar greinst í rúmlega sextíu löndum hefur Alþjóðabankinn ákveðið að verja nú þegar tólf milljörðum bandarískra dala – tæpum 1600 milljörðum íslenskra króna – í stuðning við þróunarríki.

Tímabært að tryggja börnum öruggt aðgengi að hæli og alþjóðlegri vernd
Afshan Khan, yfirmaður UNICEF í Evrópu og Mið-Asíu og flóttamannahjálparinnar í Evrópu segir ekkert eitt ríki geti annað flóttamannastraumnum frá Sýrlandi. Öll Evrópa verði að standa við bakið á Grikkjum og Tyrkjum sem undanfarin ár hafa tekið móti gríðarmiklum fjölda fjölskyldna á flótta. Ekkert barn ætti að þurfa að stefna lífi sínu í voða í leit að öryggi.

Fylgjumst náið með innleiðingu stefnunnar
Að óbreyttu verða íbúar stríðshrjáðra ríkja tveir af hverjum þremur sárafátækum eftir tíu ár, segir í nýrri stefnu Alþjóðabankans um óstöðugleika, átök og ofbeldi.

Konur eru ekki frávik frá reglu karlmanna
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur heitið því að beita persónulegum áhrifum sínum í þágu jafnréttis kynjanna, þar á meðal til höfuðs lögbundinni kynferðislegri mismunun, fyrir þátttöku kvenna í friðarviðleitni og að tekið verði tillit til ólaunaðra starfa á heimilum í reikningi þjóðarframleiðslu.

Nýtt verkefni til skoðunar í landgræðslu og sjálfbærri landnýtingu
Til skoðunar er að setja á fót nýtt þróunarsamvinnuverkefni á sviði landgræðslu og sjálfbærrar landnýtingar. Um yrði að ræða samstarfsverkefni Íslands og Norræna þróunarsjóðsins (NDF) í samvinnu við Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP), byggt á grunni samstarfs þessara aðila sem skilað hefur miklum árangri í jarðhitaverkefni í austanverðri Afríku á síðustu árum.

Leggið ykkur fram um að sýna frumkvæði og hafa áhrif
Þór H. Ásgeirsson forstöðumaður Sjávarútvegsskólans útskrifaði 24 nemendur í vikunni. Tólf konur og tólf karlar voru í útskriftarhópnum að þessu sinni, frá tólf löndum í Asíu, Afríku og Karíbahafi. Þór hvatti hópinn til að sýna frumkvæði og hafa áhrif.

Salah skipaður velgjörðarsendiherra Flóttamannastofnunar SÞ
Mohamed Salah framherji Liverpool er fyrsti velgjörðarsendiherra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) í skólaverkefni sem hefur þann tilgang að tryggja börnum í flóttamannabúðum í Afríku gæðamenntun.

Börn og kennarar létust í árásum á skóla og leikskóla í Idlib
Að minnsta kosti níu börn og þrír kennarar létu lífið í árásum á tíu skóla og leikskóla í Idlib í Sýrlandi í gær. Ted Chaiban, yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku, fordæmir árásirnar og segir fólk orðlaust yfir ofbeldinu.

Óttast um líf barna í Simbabve
Lífsbarátta almennings í Simbabve er komin á það stig að samtökin Barnaheill – Save the Children óttast um líf barna. Samtökin hvetja framlagsríki og alþjóðasamfélagið til þess að bregðast strax við bágum aðstæðum íbúa Simbabve áður en þær breytast í neyðarástand.

Til skoðunar að hefja samstarf við nýtt hérað í Úganda
Til skoðunar er að hefja undirbúning að verkefnum í nýju samstarfshéraði í Úganda. Nýja héraðið, Namayingo, er í austurhluta landsins, og nær bæði til eyja úti á Viktoríuvatni og samfélaga uppi á landi.

Guðlaugur Þór ræddi mannréttindi við utanríkisráðherra Sádi-Arabíu
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra skoraði á utanríkisráðherra Sádi-Arabíu að láta baráttufólk fyrir mannréttindum tafarlaust úr haldi á fundi þeirra í Genf síðdegis í gær. Guðlaugur Þór tekur þátt í 43. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sem hófst í gær.

Sýnir sterkan vilja stjórnvalda að beita sér fyrir jafnrétti á heimsvísu
Íslensk stjórnvöld hafa óskað eftir því að vera meðal forysturíkja átaksverkefnis UN Women: Jafnréttiskynslóðin (Generation Equality) til næstu fimm ára.

Suður-Súdan: Rúmlega helmingur þjóðarinnar við hungurmörk
Þrjár stofnanir Sameinuðu þjóðanna vekja athygli á alvarlegum matarskorti í Suður-Súdan og segja í yfirlýsingu að rúmlega helmingur þjóðarinnar, ríflega 6,5 milljónir manna, eigi á hættu að draga fram lífið við hungurmörk á vormánuðum.

Viljayfirlýsing um aukið samstarf Háskóla Íslands og Makerere háskólans í Úganda
Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um aukið samstarf milli Háskóla Íslands og Makerere háskólans í Kampala, Úganda.

Ástandið aldrei verið verra í Sýrlandi, segir UNICEF
Rúmlega hálf milljón barna í norðvesturhluta Sýrlands hefur neyðst til að flýja heimili sín frá 1. desember síðastliðnum. Tugþúsundir barna og fjölskyldur þeirra búa nú ýmist í tjöldum eða undir berum himni.

Allar þjóðir bregðast börnum – nýjar ógnir steðja að
Samkvæmt öllum hefðbundnum mælikvörðum er gott að vera barn á Íslandi. Þetta eru niðurstöður nýrrar sérfræðingaskýrslu – A future for the World´s Children. Ísland bregst þó börnum þegar kemur mengum miðað við höfðatölu.

Áratugur aðgerða í þágu heimsmarkmiðanna
Sameinuðu þjóðirnar hleyptu af stokkunum stórátaki á dögunum sem hefur þann tilgang að herða baráttuna um heimsmarkmiðin, nú þegar áratugur er til stefnu þar til þau eiga að vera komin í höfn.

Rúmlega 400 milljónir barna búa á átakasvæðum
Stríðs- og átakasvæði verða sífellt hættulegri fyrir börn, segir í árlegri skýrslu sem Barnaheill - Save the Children sendi frá sér á dögunum. Samkvæmt skýrslunni hefur ofbeldi gegn börnum á átakasvæðum aldrei verið meira frá því skráningar hófust.

Fjárskortur hamlar stuðningi við fyrrverandi barnahermenn
Í dag, á alþjóðlegum degi gegn því að nota börn í hernaði, gefur Barnahjálp Sameinuðu (UNICEF) þjóðanna út viðvörun um fjárskortur hamli mikilvægri starfsemi stofnunarinnar í Suður-Súdan, verkefni sem snýr að stuðningi við börn eftir að þau hafa verið leyst undan þrældómi hermennsku.

Konur innan við þriðjungur þeirra sem stunda vísindarannsóknir
Konur eru aðeins 30% þeirra sem stunda vísindarannsóknir í heiminum og hlutfall kvenna í raungreinanámi í háskólum er svipað, eða innan við þriðjungur allra háskólanema í raungreinum. Í dag, 11. febrúar, er alþjóðlegur dagur helgaður konum og stúlkum í vísindum.

Afríka: Börn í hermennsku tvöfalt fleiri en fyrir fimm árum
Á átakasvæðum í Afríku hefur ekki orðið mikil fækkun á alvarlegum brotum gegn börnum á undanförnum árum, þvert á skuldbindingar leiðtoga Afríkuríkja um að binda endi á öll vopnuð átök í álfunni, fyrir árið 2020.

Ákall um aðstoð við 48 milljónir kvenna og stúlkna
Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) birti í gær ákall til alþjóðasamfélagsins um þörf fyrir rúmlega 87 milljarða króna framlag til að bregðast við brýnni neyð í tengslum við kyn- og frjósemisréttindi 48 milljóna kvenna, stúlkna og ungmenna.