Innlent
68 69 70 71 72 73 74 75 76 … 334 ›
Nota málmleitartæki á busaballi MR Notast verður við málmleitartæki í öryggisgæslu á busaballi Menntaskólans í Reykjavík sem fer fram á fimmtudag. Rektor skólans segir viðbótina gerða til að ungmenni á ballinu upplifi sig örugg. Innlent 3.9.2024 16:57
Skjálfti að stærð fimm í Bárðarbungu Jarðskjálfti af stærð 5,0 reið yfir í Bárðarbunguöskju á fimmta tímanum í dag. Nokkur virkni hefur verið þar síðustu daga en engin merki um gosóróa. Fáir eftirskjálftar hafa mælst. Innlent 3.9.2024 16:50
Ákvörðun handan við hornið Dómsmálaráðherra ætlar að tilkynna ákvörðun sína varðandi Helga Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknara á allra næstu dögum. Þetta sagði hún eftir fund ríkisstjórnar í morgun. Innlent 3.9.2024 16:30
„Ég ætla ekki að fara með þér niður í bæ ef þú ert með hníf“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir mikilvægt að skólasamfélag, heimilin og allt samfélagið komi að þjóðarátaki gegn vopnaburði og ofbeldi meðal ungmenna. Jafningjastuðningu sé einnig mikilvægur. Besta forvörnin fyrir ungmennin sé þó alltaf að ganga ekki með vopn á sér. Afleiðingarnar af því geti verið svo alvarlegar. Innlent 3.9.2024 15:01
Þénuðu hvorki né eyddu meiru en 550 þúsund Eiríkur Ingi Jóhannsson og Viktor Traustason, sem báðir gáfu kost á sér til embættis forseta Íslands, eyddu hvorki né þénuðu meiru en 550 þúsund krónum í tengslum við framboð sín. Þeir hafa báðir skilað inn yfirlýsingu þess efnis til Ríkisendurskoðunar. Innlent 3.9.2024 14:47
Börnin sem borðuðu kannabis-bangsana enn á spítala Börnin sem flutt voru á slysadeild eftir að hafa borðað gúmmíbangsa með THC eða kannabis eru enn á spítala en ekki talin í lífshættu. Börnin eru yngri en tíu ára gömul. Valtýr Stefánsson Thors yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann segir þau vita hvernig börnin komust í bangsana. Hann á von á því að börnin verði útskrifuð fljótlega. Innlent 3.9.2024 14:34
Stuðlar orðnir að gæsluvarðhaldsfangelsi fyrir börn Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við stöðu sem upp sé komin á Stuðlum sem nái ekki að sinna hlutverki sínu sem meðferðarúrræði vegna þess að meðferðarheimilið sé orðið að gæsluvarðhaldsfangelsi. Hún hefur mikla trú á samfélagslögreglu til að bregðast við vopnaburði barna. Innlent 3.9.2024 14:06
Skýr mynd komin af atburðum á Skúlagötu Lögregla telur sig vera komna með skýra mynd af atburðum á Skúlagötu á menningarnótt, þegar sautján ára stúlka varð fyrir stunguárás sem dró hana til dauða. Innlent 3.9.2024 14:00
Undrandi að enn séu seldar íshellaferðir Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, segir það koma sér á óvart að enn sé verið að selja ferðir í íshella, eftir slysið í íshellinum á Breiðamerkurjökli í síðasta mánuði. Hann spurði á ríkisstjórnarfundi í morgun hvort ástæða væri til að stöðva slíkar ferðir að sumarlagi. Innlent 3.9.2024 13:55
Fundaði með ráðherrum vegna vopnaburðar ungmenna Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir nauðsynlegt að setja aukinn kraft í aðgerðir og forvarnir til að sporna gegn aukinni ofbeldishegðun og vopnaburði barna sem vart hefur orðið við að undanförnu. Sigríður fundaði með ráðherrum ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem kynntar voru tillögur að frekari aðgerðum til að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin. Innlent 3.9.2024 13:12
Tæki marga mánuði fyrir hraun að ná innviðum Engir innviðir eru í hættu á Reykjanesskaga miðað við hraða hraunflæðis. Fastjóri aflögunar hjá Veðurstofu Íslands segir að innflæði í kvikuhólfið undir Svartsengi sé jafn mikið og flæðir úr í eldgosinu. Hættumat verður uppfært síðar í dag. Innlent 3.9.2024 12:52
Mál tveggja áfengisnetverslana komin á borð ákærusviðs Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á kærum á hendur tveimur netverslunum sem selja áfengi er lokið. Mál þeirra eru nú á borði ákærusviðs embættisins. Innlent 3.9.2024 12:41
„Við erum búin að sitja í ríkisstjórn þar sem við höfum gefið ýmislegt eftir“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra Sjálfstæðisflokksins, segir flokkinn þurfa að leita í ræturnar. Óánægju kjósenda megi meðal annars rekja til þess að flokkurinn hafi þurft að lúffa í ýmsum málaflokkum í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi. Innlent 3.9.2024 12:36
Segja kílómetragjald koma illa niður á tækjulægri hópum Í hádegisfréttum verður rætt við sérfræðing hjá ASÍ sem gagnrýnir fyrirhugað kílómetragjald á alla bíla harðlega. Innlent 3.9.2024 11:40
Bein útsending: EES og innri markaðurinn Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið halda í dag opinn fund um stöðu og hörfur EES og innri markaðarins. Um þessar mundir á EES-samningurinn, sem tengir Ísland við innri markað Evrópusambandsins , þrjátíu ára afmæli. Innlent 3.9.2024 11:03
Andri nýr alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins Andri Lúthersson hefur tekið við starfi alþjóðafulltrúa forsætisráðuneytisins. Hlutverk alþjóðafulltrúa er að vera ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og hafa yfirsýn og halda utan um erlend samskipti forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Innlent 3.9.2024 10:58
Ekkert uppgjör frá tveimur framboðum og Halla og Katrín síðastar að skila Allir nema tveir frambjóðendur til embættis forseta Íslands hafa skilað til Ríkisendurskoðunar fjárhagslegu uppgjöri vegna framboðs til embættisins. Frestur til að skila inn uppgjöri rann út í gær þegar þrír mánuðir voru liðnir frá forsetakosningum. Innlent 3.9.2024 10:35
Tæplega þrjátíu missa vinnuna á Vestfjörðum Tæplega þrjátíu starfsmönnum Vestfirskra verktaka var sagt upp störfum á föstudaginn. Framkvæmdastjóri segir verkefnastöðu ekki nógu góða auk þess sem eigendurnir ætli hvort í sína áttina. Innlent 3.9.2024 10:00
Sakaður um kynferðisáreitni en mögulega farinn úr landi Rúmlega fertugur karlmaður frá Litháen hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni á salerni skemmtistaðarins Miðbarnum á Selfossi í ágúst 2022. Ekki hefur tekist að birta viðkomandi ákæruna og er hún því birt opinberlega í Lögbirtingablaðinu. Innlent 3.9.2024 09:49
Í lífshættu sextán ára en hefur öðlast nýtt líf með þyngdarstjórnunarlyfjum Sveinn Rúnar Sveinsson er með sjaldgæfan efnaskiptasjúkdóm. Sextán ára gamall var hann orðinn 140 kíló og fékk að heyra að ef hann héldi áfram á sömu braut myndi hann ekki lifa fram á fullorðinsár. Stuttu seinna byrjaði hann á þyngdarstjórnunarlyfinu Saxenda. Innlent 3.9.2024 08:59
Jöklafræðingur heiðursfélagi í Alþjóðasambandi stjarnfræðinga Íslenskur jöklafræðingur sem helgar stóran hluta frítíma síns athugunum á næturhimninum var gerður heiðursfélagi í Alþjóðasambandi stjarnfræðinga í síðasta mánuði. Hann segir vægi áhugastjarnfræðinga sífellt að aukast. Innlent 3.9.2024 07:01
„Það er enginn öryggisventill þarna, það bremsar þetta ekkert af“ Einstaka veiðifélög íhuga alvarlega að leita réttar síns vegna þess tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir sem rekja megi til umhverfismengunar frá fiskeldi. Þá gagnrýna Landssamtök veiðifélaga stjórnvöld, einkum Matvælastofnun, fyrir að beita ekki þeim heimildum sem stofnunin hafi samkvæmt lögum til að áminna fiskeldisfyrirtæki eða svipta þau starfsleyfi í þeim tilfellum sem við gæti átt. Formaður landssamtakanna segir svör stjórnvalda ekki upp á marga fiska. Innlent 3.9.2024 07:01
Tvö börn flutt á spítala eftir að hafa neytt kannabis-gúmmíbangsa Tvö börn voru flutt á Barnaspítalann Hringsins í gær eftir að í ljós kom að þau höfðu borðað gúmmíbangsa sem innihéldu THC, tetrahýdrókannabínól, sem unnið er úr kannabisplöntunni. Innlent 3.9.2024 06:06
Æfðu viðbragð eftir stórt brunaslys með Bandaríkjaher Viðbragðsaðilar á Íslandi ásamt Bandaríkjaher æfðu í dag viðbragð við því ef fjöldi fólks fengi alvarleg brunasár á sama tíma. Æfingin gekk vel að sögn þátttakenda sem margir hverjir brugðu sér í gervi sjúklinga. Innlent 2.9.2024 23:02
Skjálftavirkni minnkað við kvikuganginn Virkni í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni hefur haldist óbreytt síðastliðinn sólarhring en tólf dagar eru síðan gosið hófst. Sem fyrr er of snemmt að segja til um hvort landris sé hafið að nýju á Reykjanesskaga. Innlent 2.9.2024 22:34
„Við þurfum að læra af öðrum þjóðum“ Hlynur Snorrason, formaður félags yfirlögregluþjóna, segir það ekki of seint að bregðast við ógnvænlegri þróun þar sem ungmenni beita vopnum í auknum mæli og að allt samfélagið þurfi að leggjast á eitt til að sporna gegn þessu. Mikilvægt sé að draga lærdóm frá öðrum þjóðum. Innlent 2.9.2024 22:03
Geimvísindastofnun Íslands stóð fyrir fundi í Grósku Opinn fundur Alþjóðlega vinnuhópsins um kannanir reikistjörnunnar Mars (IMEWG) fór fram í Grósku í kvöld. IMEWG kom saman hér á landi í boði Geimvísindastofnun Íslands en þetta er í fyrsta sinn sem fundurinn er opinn almenningi. Innlent 2.9.2024 21:49
Húseigendur og leigjendur vilja nýja löggjöf og kalla eftir samráði Leigjendur og húseigendur lýsa yfir mikilli óánægju með breytingu á húsaleigulögum. Forsvarsfólk þeirra segir að lítið sem ekkert samráð hafi verið haft við þau meðan lögin voru í smíðum. Kallað er eftir nýrri húsaleigulöggjöf. Innlent 2.9.2024 21:00
Mega ekki leita að vopnum í töskum og fatnaði barnanna Vopnaburður grunnskólabarna og unglinga hefur aukist á síðustu árum segir formaður Skólastjórafélags Íslands. Enn uggvænlegri þróun hafi orðið nýlega í þá átt að ungmenni eru farin að beita vopnunum. Samfélagið sé komið á alvarlegan stað og nú þurfi að spyrna við fótum. Innlent 2.9.2024 20:00
Viðauki við samning SÍ og SÁÁ hluti af aðgerðum gegn ópíóðavandanum Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra staðfesti í dag viðauka við samning Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um flýtiþjónustu vegna fíknisjúkdóma og snemminngrip fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóíðafíkn. Samningurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar. Innlent 2.9.2024 19:14