Fastir pennar

Yfirburðir Sjálfstæðisflokksins

Eins og nú horfir, þá stefnir í yfirráð Sjálfstæðisflokksins í flestum fjölmennustu sveitarfélögunum á þéttbýlasta og fjölmennasta svæði landsins eða öllu Suðvesturlandi, þótt undantekningar séu vissulega þar á. Flokkurinn er nú þegar með meirihluta á mörgum þessara staða og fátt sem bendir til annars en að hann haldi þar styrk sínum í flestum tilfellum.

Fastir pennar

Sorpblöð og óvelkomin starfsemi

Í Bretlandi er sorpblaðamennskan hvað ruddalegust. Við höfum tvö nýleg dæmi, bæði úr sama blaði – News of the World. Það er almennt talið botninn. Annað er um landsliðsþjálfara Bretlands, Sven Göran Eriksson. Hann var leiddur í gildru...

Fastir pennar

Atlaga að Ingólfsfjalli

Efnistaka úr Þórustaðanámu í Ingólfsfjalli hefur staðið í um fimmtíu ár, og í tæp tvö ár hefur verið unnið uppi á fjallinu, þótt ekki sé búið að úrskurða um umhverfisáhrifin af allri efnistökunni. Það hljómar einkennilega í eyrum margra, því Skipulagssstofnun hefur þegar úrskurðað um að hluti alls þessa rasks í Ingólfsfjalli sé háður mati á umhverfisáhrifum vegna umfangs þess.

Fastir pennar

Ertu að verða náttúrulaus?

Já, jafnvel þótt við verðum náttúru­laus í kynlífinu og áhrifalaus í samfélaginu, þá þurfum við ekki að verða náttúrulaus í skoðunum og afstöðu. Við þurfum ekki að gefast upp meðan við stöndum upprétt. Ég vona að minnsta kosti að svo sé ekki.

Fastir pennar

Hverju á að trúa?

Hafa skattar lækkað eða hafa skattar hækkað? Um það deila nú Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra. Stefán segir skattana hafa hækkað en Árni segir þá hafa lækkað. Báðir eru sannfærðir um að þeir hafi hárrétt fyrir sér.

Fastir pennar

Þegar ég elti William Hague

Það sem stóð upp úr var að Hague virtist ekkert þekkja til Davíðs Oddssonar, eða allavega gaf hann ekkert út á það. Ég tjáði honum að það væri miður – Oddsson væri einhver sigursælasti íhaldsmaður á Vesturlöndum...

Fastir pennar

Skatthlutfall og skattbyrði

Þótt fjármálaráðherrann og aðrir formælendur ríkis­stjórnarinnar haldi því fram með réttu að kaupmáttur launatekna hafi aukist, þá á það jafnt við um þá sem hafa miklar eða litlar tekjur, og þeir sem eru í efri kantinum hljóta þá að hafa hagnast mest á kaupmáttaraukningunni.

Fastir pennar

Plís, allt nema flís!

Hér er fjallað um prófkjör sem eru víða á döfinni vegna kosninganna í vor, úrslit prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, hlutafélagavæðingu RÚV og afstöðu stjórnarandstöðunnar til hennar og loks er aðeins vikið að hugmyndum um skólabúninga...

Fastir pennar

Boðberar aukinna ríkisafskipta

Það er í raun illskiljanlegt af hverju menntamálaráðherra hafnaði hugmynd stjórnarandstöðunnar um nýja fjölmiðlanefnd sem tæki fjölmiðlamarkaðinn í heild til skoðunar, þar með talið stöðu og hlutverk RÚV. Því hefur áður verið haldið hér fram að þátttaka ríkisljósvakamiðlanna á auglýsingamarkaði sé í raun samkeppnishindrun sem komi í veg fyrir að fleiri aðilar geti spreytt sig á ljósvakamarkaði.

Fastir pennar

Súrsun og símaþjónusta

Snjallir og útsjónarsamir framkvæmdastjórar í Bandaríkjunum og Evrópu sáu það í hendi sér, að það gat borgað sig að súrsa símaþjónustuna með því að senda hana til Indlands.

Fastir pennar

Um fordóma og fáfræði

Það er algengt mælskubragð núorðið að ásaka þá sem ekki eru sammála manni um fordóma. Þeir sem er núið slíkt um nasir verða yfirleitt kjaftstopp. Öllum finnst óþægilegt að fá á sig þennan stimpil. Biskupinn yfir Íslandi er sagður vera bæði fáfróður og fordómafullur...

Fastir pennar

Nákvæmni sem kækur

Umræða um fjölmiðlun á Íslandi virðist oftar en ekki snúast um það hvort íslenskir fjölmiðlar gangi of langt eða of skammt, séu of harðir eða of linir. Þessi orð ná svo sem vel því sem um er rætt, það er einkennum íslenskrar fjölmiðlunar, en kannski á kostnað þess að menn líti til annarrar víddar sem sjaldnar er rædd, þess hvort fjölmiðlar fari ekki of grunnt í flest mál. Nákvæmni er ekki það sama og dýpt.

Fastir pennar

Kveða þarf upp úr um Þjórsárver

Spurningin um Norðlingaölduveitu er í augum almennings fyrst og fremst spurningin um Þjórsárver, einhverja mestu náttúruperlu Íslands. Þó að Kárahnjúkavirkjun hafi á sínum tíma verið samþykkt á Alþingi með miklum mun hefur hún valdið djúpstæðum klofningi meðal þjóðarinnar. Smám saman er það líka að gerast að erlendar þjóðir eru farnar að skipta sér af náttúruvernd og virkjunum á Íslandi. Í huga margra útlendinga, ekki síst þeirra sem þekkja og dást að náttúru Íslands, eru það ekki einkamál Íslendinga hvernig gengið er um landið heldur varðar það heiminn allan.

Fastir pennar

Víst verður kosið um skipulag!

Skipulagsmál eru ekki einhverjar abstraksjónir, hugarleikfimi fyrir menningarvita sem koma alþýðufólki ekkert við, heldur fræðin um það hvernig við lifum í borgum. Mistök í skipulagi geta haft skelfilegar afleiðingar – mótað líf milljóna manna...

Fastir pennar

Sæl elskan, takk vinan

Í þessum flokki ber fyrst að nefna eignarfornöfnin: mín og minn, nafnorðin: vinan og vinur og síðast en ekki síst þetta orð elskan, sem er jafn fallegt úr munni þess sem má nota það og það er óþolandi úr munni þess sem ekki hefur þann sess í lífi manns eða konu.

Fastir pennar

Ísland fríhöfn!

Hvers vegna mega þeir einir njóta lágs vöruverðs erlendis, sem eiga þangað erindi? Hvers vegna megum við, sem heima sitjum, ekki njóta hins sama? Það myndum við gera, væri Ísland allt ein fríhöfn.

Fastir pennar

Konurnar í "Karlabæ"

Prófkjör eiga að bera vott um að lýðræðið sé í heiðri haft, en reynslan hefur nú sýnt að það eru einkum þeir sem hafa yfir að ráða vel smurðum kosningavélum sem fara þar með sigur af hólmi og svo óumdeildir foringjar innan stjórnmálaflokkanna.

Fastir pennar

Ritstjórnir fái erindisbréf

Hitt er einkennilegt sjónarmið hjá framkvæmdastjóra félagsins, Gunnari Smára Egilssyni, að yfirmenn á ritstjórnum eigi sjálfir að ákveða hvers konar fjölmiðil þeir reka. Eigendur og rekstrarstjórar fjölmiðla eiga ekki að geta firrt sig ábyrgð með slíku tali enda blasir við að það getur ekki verið heil brú í slíkum vinnubrögðum.

Fastir pennar

Sannleikurinn rúmast ekki í fyrirsögn

Það sem varð blaðinu í þessari mynd um síðir að falli var að það sendi frá sér þau skilaboð að það liti á þjóðina sem óvin; ef ekki væri gert lítið úr viðkomandi væri um að ræða kranablaðamennsku. Úr varð klóakblaðamennska.

Fastir pennar

Eins og úr sjónum

Hér er vitnað í endurminningar bresks diplómata sem gefur óviðjafnanlega lýsingu á Íslendingi, sagt frá þemakvöldi um Ísland í danska sjónvarpinu sem var fullur af klisjum um álfa og vísað í skrif á bloggsíðu fyrrverandi blaðamanns á DV...

Fastir pennar

Búa fyrirtæki við rétt orkuverð?

Á nýbyrjuðu ári á að hefjast fyrir alvöru samkeppni á raforkumarkaði, en því máli seinkar að vísu um nokkra mánuði. Hvað út úr því kemur raunverulega er óvíst á þessari stundu.

Fastir pennar

Sérstakt framsal merkir hræðilegir glæpir

Fólk notar slík orðasambönd til að komast hjá því að nota önnur sem færu vandræðalega nálægt því að lýsa sannleikanum. Þjóðernishreinsun og hin endanlega lausn voru notuð til þess að komast hjá því að nota orðið þjóðarmorð, og að nota orðasambandið sérstakt framsal felur í sér að málnotandinn er of mikil kveif til að segja: stríðsfangar sem pyndaðir eru í öðrum löndum.

Fastir pennar

Of gott fyrir þessa þjóð?

Mér sýnist að Eiríkur Jónsson telji að blaðið hafi hvergi misstigið sig - enda er hann einn helsti hugmyndafræðingur þess. Eiríkur kvartar undan hræsni í umfjöllun um DV og varpar fram þeirri spurningu hvort blaðið sé "of gott" fyrir þessa þjóð?

Fastir pennar

Ný viðmið um ábyrgð

Þeir sem krefjast þess af öðrum að taka ábyrgð verða að gera það sjálfir. Það færi aldrei sem svo að viðbrögð flokkanna í þessari viku væru ávísun á siðbót í íslenskum stjórnmálum?

Fastir pennar

Líf á útfjólublárri öld

Langsamlega stærsti þátturinn í útblæstri koltvísýrings á heimsvísu er bílaumferð. Alls mun um fimmtungur hans stafa af notkun fólksbíla. Þetta bætist ofan á alla þá mengun aðra sem stafar af bílaumferð, hið gríðarlega landflæmi sem fer í umferðarmannvirki og öll þau mannslíf sem farast í umferðinni á ári hverju.

Fastir pennar

Sannleikurinn og tillitssemin

Sú ritstjórnarstefna sem byggir á því að hafa það sem aðalreglu að birta myndir og nöfn fólks sem fjallað er um er þess vegna ekki byggð á skyldu blaðamannsins til að segja sannleikann. Sú siðferðilega skylda á víða við eins og t.d. ef einhver er vísvitandi að geyma mikilvægar upplýsingar ofan í skúffu til hugsanlegrar birtingar síðar, þegar og ef það muni henta viðkomandi blaði eða blaðamanni.

Fastir pennar

DV, sannleikurinn og siðferðið

DV í síðustu birtingarmynd sinni hefur gengið miklu lengra en áður hefur verið gert í íslenskri blaðamennsku - og lengra en flest blöð úti í heimi. Sumt af því myndi varða við lög í nágrannalöndum - án þess að blaðamenn þar telji sig lifa undir áþján ritskoðunar...

Fastir pennar

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Blaðamenn DV segjast vera sannleiksleitandi og ekki hlífa neinum, en stundum þurfa menn að athuga sinn gang og fara vandlega yfir hvað skuli birt og hvað ekki. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fréttaflutningur og uppsláttur DV veldur umtali í þjóðfélaginu og háværar raddir fordæma hann, en viðbrögðin hafa líklega aldrei verið meiri en nú, sem hlýtur að vera forráðamönnum blaðsins umhugsunarefni.

Fastir pennar