Fastir pennar

Merkilegra en það sýnist

Málið snýst miklu frekar um stærstu sögu samtímans, þróunina til þeirrar áttar að heimurinn er að verða að einum stað. Hversu slæmt eða gott sem mönnum finnst það þá geta ríki ekki lengur afmarkað sig sem sjálfstæð eylönd í hafi sem skilur þjóðir. Aflvaka nánast allra mikilvægra breytinga í þjóðlífi, atvinnulífi og menningu, jafnvel í stærstu ríkjum heims, er í reynd að finna utan hvers lands.

Fastir pennar

Straumurinn stöðvast ekki

Í umræðum um byggðamál á Alþingi í síðustu viku var lagt til að taka ætti málaflokkinn af iðnaðarráðuneytinu og flytja til forsætisráðuneytisins. Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra fannst lítið til um málflutning kollega sinna á þingi og kallaði umræðuna "raus í átta klukkustundir".

Fastir pennar

Af ræðum á Viðskiptaþingi

Þetta finnst mér vont ástand. Það er vont að vera í þeirri stöðu að ráða ekki örlögum sínum heldur verða að fljóta með straumnum. En það er einmitt það sem hefur gerst í utanríkismálum þjóðarinnar nú síðasta áratuginn.

Fastir pennar

Staðan í borginni

Það verður enginn hreinn meirihluti. Sumir gera því skóna að Framsókn myndi meirihluta með Sjálfstæðisflokki. Það myndi vissulega veita Framsókn völd langt umfram kjörfylgi – sem er þekkt og eftirsótt staða á þeim bæ. En miðað við hina pólitísku taflstöðu er þetta ólíklegt...

Fastir pennar

Tilskipun Viðskiptaþings

Ekki er hægt að kalla Viðskiptaþing einhverja grínistasamkomu. Þetta er vettvangur þeirra sem láta að sér kveða í hinu svonefnda viðskiptalífi – þennan vettvang notar forsætisráðherra landsins til að koma á framfæri hugmyndum sínum um samskipti Íslendinga við Evrópusambandið; þarna ráðslaga menn um það hvernig hér skuli umhorfs árið 2015; þarna er stefnan sett; kúrsinn settur.

Fastir pennar

Dagur leiðir Samfylkingarlistann

Það voru þrír hæfir einstaklingar sem stefndu á fyrsta sætið hjá Samfylkingunni, og þótt menn hafi borið sig nokkuð vel í gærkvöld, þegar tölurnar voru birtar, hljóta þær innst inni að valda vonbrigðum hjá Steinunni Valdísi og Stefáni Jóni, kannski meiri vonbrigðum hjá honum, því hann hefur nú um langt skeið stefnt einarðlega að því að halda sæti sínu sem forystumaður Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Fastir pennar

Bítlabærinn – Þjóðleikhús að hrynja

Hér er fjallað um skemmtilega heimildarmynd um bítlabæinn Keflavík, þá merku listgrein skautadans, Þjóðleikhúsið sem stendur með brotna glugga og múrhúð sem er að hynja af byggingunni og loks er minnst á viðtal við Sjón sem birtist í Silfrinu...

Fastir pennar

Sjóðir eru sjaldnast lausn

Reynslan af þátttöku ríkisins í atvinnulífinu er ekki góð. Ríkið er svifaseint og tregðulögmálin fljót að taka völdin. Gott dæmi um slíkt er sú staða sem Íbúðalánasjóður er lentur í. Innkoma bankanna á íbúðalánamarkaðinn hefði átt að kalla á skjót viðbrögð stjórnvalda um að vinda ofan af sjóðnum. Venjulegt launafólk þarf ekki á ríkisábyrgð að halda til að koma sér þaki yfir höfuðið.

Fastir pennar

Múslimar Evrópu einangraðir

Deilan um skopteikningarnar af Múhameð sem birtust í Jótlandspóstinum er túlkuð í fjölmiðlum sem menningarlegur árekstur á milli frjálslyndra Vesturlanda og múslimaheimsins sem afneitar hugmyndinni um tjáningarfrelsi. Til að halda fram þessari tilgátu fram þarf einkum tvennt að koma til: fáfræði og hræsni.

Fastir pennar

Sektarþrá og eilífar afsakanir

Samt verður maður var við ótrúlega tregðu við að styðja gildi vestræns samfélags, hjá mörgum þykir það beinlínis ljótt. Afstæðishyggjan með öllum sínum flóknu réttlætingum er býsna notaleg – maður þarf í raun aldrei að taka afstöðu til neins, allt má skýra með menningarmun og félagsmótun...

Fastir pennar

Hægri grænir?

Hér er fjallað um stórlaxa í viðskiptalífinu sem gagnrýna stóriðjustefnuna, hræsnina í múslimaleiðtoganum Sir Iqbal Sacranie, mæður, börn og lýsi og rokktónlist sem er álíka spennandi núorðið og endurskoðun eða fluguveiðar...

Fastir pennar

Stuðningur við hestamennsku

Það má því búast við að reiðhöllum og skemmum eða skálum fyrir hesta og tamningar fjölgi mjög á næstunni. Vonandi fer landsbyggðin ekki varhluta af þessari uppbyggingu, því það er fyrst og fremst þar sem uppruni og heimkynni hrossanna er.

Fastir pennar

Hrúður rifið af hálfgrónu sári

Það augljósasta er að Halldór er orðinn forsætisráðherra og þarf ekki lengur að taka tillit til Davíðs Oddssonar. Breytingar í valdahlutföllum í forustu Sjálfstæðisflokksins ríma við og losa um nýjar áherslur í hinu pólitíska baklandi sjálfstæðismanna.

Fastir pennar

Umræða um ESB og menntun

Ástæða er til þess að hvetja til meiri umræðu um Evrópumálin almennt í þjóðfélaginu, svo við getum verið við því búin að taka ákvörðun í þeim efnum ef og þegar að því kemur að við þurfum að gera upp hug okkar varðandi þessi mál.

Fastir pennar

Móðir jörð er ekki til sölu

Hvar eigum við að draga mörkin milli þess, sem er leyfilegt, og hins, sem er það ekki? Mestallur ágreiningur um stjórnmál hverfist um þessa grundvallarspurningu. Hvar eigum við að draga mörkin milli löngunarinnar til að lyfta lífskjörum okkar með því að skipta sem mest við önnur lönd til dæmis með aðild að Evrópusambandinu og hins að sveipa um okkur varnarhjúpi til að bægja frá hættunni á að tapa þjóðlegum sérkennum okkar?

Fastir pennar

Prófkjör skerpa hugann

Hér er fjallað um hugmyndir um að gæða Klambratún lífi, frumvarp um dreifiveitur sem Mörður hefur lagt fram, rifjuð upp skýrsla um nýja skipun upplýsingamála í heiminum og loks er aðeins minnst á hnignun bílaiðnaðarins í Bandaríkjunum...

Fastir pennar

Lífeyrissjóðir standi undir nafni

Allt ber þetta að sama brunni, og það er að lífeyris­­sjóðirnir séu stórir og sterkir og geti tekist á við hlutverk sitt, sem er að greiða út réttlátan lífeyri og örorkubætur. Þá þarf fjárfestingarstefnan að vera þannig að þeir geti mætt óvæntum áföllum

Fastir pennar

Uppáhaldsbókstafurinn

Meðan listabókstafir hafa ekki fengið líf og lit, andlit og innihald er of snemmt að ganga út frá því að einhver fylkingin sé með unnið tafl. Þvert á móti tel ég að allt stefni í spennandi kosningaslag með tvísýnum úrslitum.

Fastir pennar

Blýárin, Róska og Berlusconi

Maður þóttist alltaf vita að Róska hefði verið innundir hjá harðasta kjarna róttæklinganna á Ítalíu. Hér heima voru sögusagnir um að hún tengdist Rauðu herdeildunum, einhverju virkustu hryðjuverkasamtökum í vestrænu ríki. Úr þessu var ekki skorið í myndinni...

Fastir pennar

Öryggislögregla ríkisins

Viðbrögðin við þessari tillögu dómsmálaráðherra eru hálf einkennileg. Annars vegar er talað um hana í hálfkæringi, eins og þetta sé eitthvað grín, "íslensk leyniþjónusta ha ha", eða af æsingi og með skömmum eins og hér eigi að fara að stunda stórfelldar njósnir um andstæðinga ríkisins.

Fastir pennar

Álflokkarnir, Samfylkingin og sókn félagshyggjunnar

Hér er fjallað um stóriðjustefnuna og áhrif hennar á stjórnmálin fram að næstu þingkosningum, Framsóknarflokk sem vill ekki rugga bátnum, félagshyggjuna sem hefur gripið um sig í Sjálfstæðisflokknum og loks er spurt hvaða afstöðu Þorsteinn Pálsson tekur í Baugsmálum...

Fastir pennar

Björk velgjörðarsendiherra

Það er ánægjulegt til þess að vita að Björk Guðmundsdóttir skuli nú vera komin í hóp velgjörðarsendiherra. Því fylgir bæði mikill heiður og ábyrgð. Velgjöðarsendiherrar geta með afskiptum sínum af góðgerðarmálum haft mikil áhrif. Þeir vekja athygli á neyð ýmissa hópa sem eiga um sárt að binda.

Fastir pennar

Ímyndið ykkur allt þetta fólk

Framtak Jótlandspóstsins var til þess að niðurlægja frekar fólk sem taldi sig þegar niðurlægt. Það var til að magna elda. Það var til að kynda undir hatur. Það var til að æsa upp tilfinningar af trúarlegum og kynþáttalegum toga. Þurfum við á slíku að halda?

Fastir pennar

Múgæsingar og myndir af spámanninum

Sýrland er lögregluríki sagði menningarritstjóri Jótlandspóstsins í sjónvarpsviðtali sem ég sá áðan. Hann hefur rétt fyrir sér þegar hann segir að mótmælin í Sýrlandi hefðu ekki orðið nema með leyfi yfirvaldanna þar. Í Sýrlandi er ekki heimilt að efna til mótmæla...

Fastir pennar

Varnarviðræður í réttan farveg

Samtöl Geirs H. Haarde utanríkisráðherra og Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á ráðstefnunni um Afganistan í Lundúnum í nýliðinni viku virðist hafa verið lykillinn að því að viðræðurnar hófust á ný af fullum krafti.

Fastir pennar

Lifi málfrelsið – leyfum þeim að móðgast

Í raun er notkun þessa orðs, múslimar, vandræðaleg. Hér á landi myndu menn fyrst líta á sig sem Íslandinga, svo sem íbúa einhvers bæjarfélags, síðan kristna menn eða eitthvað annað. Við tölum ekki um alla íbúa hins kristna heims sem eitt mengi...

Fastir pennar

Stærri sneiðar af stærri köku

Ráðherrar og annað fólk í sambærilegum stöðum eiga að hafa sæmileg laun. Það tryggir sjálfstæði þeirra og minnkar með því hættuna á spillingu. Á atvinnulífið að njóta allra bestu starfskraftanna, af því að það getur boðið miklu hærri laun? Hægur vandi var fyrir þá stjórnmálamenn, sem vildu, að hafna sjálfir launahækkunum sínum, og hefðu þeir eflaust notið þess í prófkjörum og kosningum síðar meir, ef umbjóðendur þeirra deildu með þeim skoðunum.

Fastir pennar