Fréttir
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 334 ›
Önnur borg í höndum uppreisnarmanna Uppreisnar- og vígamenn hafa rekið stjórnarher Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, og aðrar sveitir hliðhollar forsetanum frá borginni Hama. Það er ein af stærri borgum landsins en einungis tveir dagar eru síðan uppreisnarmennirnir hófu sóknina að borginni og var það í kjölfar óvæntrar skyndisóknar gegn Aleppo, í norðvesturhluta landsins. Erlent 5.12.2024 18:49
Hvalveiðar, málamiðlunarflokkur og „útför“ listamanns Bjarni Benediktsson starfandi matvælaráðherra hefur veitt Hval hf. leyfi til veiða á langreyðum til næstu fimm ára. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Bjarna og formann Landverndar sem gagnrýnir ákvörðunina harðlega. Innlent 5.12.2024 18:03
Skrifaði á skothylki sem urðu eftir Maðurinn sem skaut forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna til bana á götum New York í gær, er sagður hafa skilið eftir skilaboð á patrónum, eða skothylkjum, skota sem hann skaut Brian Thompson með. Þá hafa verið birtar nýjar myndir af manninum, þær fyrstu þar sem andlit hans sést, en maðurinn gengur enn laus. Erlent 5.12.2024 17:52
Engin ástæða til að bíða eftir því að annar ráðherra veiti leyfi á sama grundvelli Bjarni Benediktsson forsætis- og matvælaráðherra segir ákvörðun um útgáfu hvalveiðileyfa ekkert annað en afgreiðslu í matvælaráðuneytinu. Verið sé að fylgja lögum. Engin ástæða sé til að bíða eftir því að annar ráðherra veiti leyfi á grundvelli sömu laga. Innlent 5.12.2024 17:25
Fresta úthlutun þingsæta Að beiðni yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi hefur landskjörstjórn ákveðið að fresta fundi til úthlutunar þingsæta sem halda átti á morgun. Ástæðan er meðal annars sautján utankjörfundaratkvæði sem þarf að úrskurða um. Innlent 5.12.2024 16:21
Útiloka verkfall í FSu á nýju ári Stjórnir og samninganefndir Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum hafa tekið þá ákvörðun að verkföll hefjist ekki aftur í Fjölbrautarskóla Suðurlands verði enn ósamið í kjaradeilunni þann 1. febrúar. Í staðinn muni hugsanlegar aðgerðir beinast að öðrum framhaldsskólum strax í febrúar. Innlent 5.12.2024 16:11
Taka ekki þátt í orðræðu og átökum Eflingar SVEIT, samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, hafa ákveðið að taka ekki þátt í „þeirri neikvæðu orðræðu og átökum sem hafa einkennt málflutning Eflingar undanfarin ár í garð veitingareksturs á Íslandi.“ Samtökin hafi ítrekað reynt að semja við Eflingu en hafi nú samið við stéttarfélagið Virðingu til fjögurra ára. Innlent 5.12.2024 16:10
Veitir leyfi til veiða á langreyði og hrefnu Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. auk leyfis til veiða á hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14 sem er í eigu Tjaldtanga ehf.. Leyfin eru veitt til fimm ára. Innlent 5.12.2024 15:29
Guðrún ráðin bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga Guðrún P. Ólafsdóttur verður bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga. Ráðning hennar var tekin fyrir á fundi bæjarráðs sveitarfélagsins í gær og tekur formlega gildi eftir bæjarstjórnarfund í næstu viku samkvæmt tilkynningu. Innlent 5.12.2024 15:27
Fjögur ár fyrir að reyna að myrða lækninn Daníel Örn Unnarsson, þrítugur, hefur verið dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps. Hann stakk lækni á kvöldgöngu ásamt konu sinni og vinahjónum ítekað í Lundi í Kópavogi í sumar. Innlent 5.12.2024 14:45
Kjálkabraut mann með einu höggi Karlmaður hefur verið dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar refsingar fyrir líkamsárás. Hann játaði að hafa veitt brotaþola eitt hökk í andlitið með þeim afleiðingum að hann kjálkabrotnaði, ein tönn datt úr honum og önnur losnaði. Innlent 5.12.2024 14:05
„Snappaði“ eftir að snjóbolti hafnaði á bílrúðunni Karlmaður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að brjóta barnaverndarlög vegna framkomu sinnar gagnvart tveimur ellefu ára drengjum. Manninum er þó ekki gerð refsing í málinu. Innlent 5.12.2024 13:49
Þessi voru oftast strikuð út í Norðausturkjördæmi Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var sá frambjóðandi í kjördæminu sem oftast var strikað yfir í nýafstöðnum kosningum. Næstur var oddviti Samfylkingarinnar en þar á eftir kom maðurinn í öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Formaður Miðflokksins hugnaðist ekki 23 kjósendum flokksins. Innlent 5.12.2024 13:02
Biðjast afsökunar á að hafa sært listamenn Stjórn listamannalauna segir tilraun til að upplýsa umsækjendur um listamannalaun um hvers vegna þeim var hafnað hafa mistekist. Beðist er afsökunar á því að hafa sært listamenn með ákvörðunartexta. Innlent 5.12.2024 12:55
„Við erum málamiðlunarflokkur“ Guðmundur Ingi Kristinsson varaformaður Flokks fólksins segir fundi með Viðreisn og Samfylkingunni ganga vel. Hann segir ófrávíkjanlega kröfu flokksins að stefna að því að útrýma fátækt á Íslandi. Flokkurinn sé þó málamiðlunarflokkur. Innlent 5.12.2024 12:28
Starfskona í frystihúsi greiðir þrefalt hærri vexti en eigandi frystihússins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætisráðherra og einn stofnenda Viðreisnar eru bjartsýn á að flokkunum takist að mynda ríkisstjórn með Flokki fólksins. Eftir kosningarnar blasti við gjörbreytt staða á Alþingi sem staðfesti breytingar á íslenska flokkakerfinu. Innlent 5.12.2024 12:20
Segjast ekkert tengjast meintu gervistéttarfélagi Efling hefur sakað atvinnurekendafélagið SVEIT um að reka „gervistéttarfélag“. Formaður Eflingar segir að ráðist sé að öllum mikilvægustu réttindum fólks á vinnumarkaði. SVEIT vísar ásökunum Eflingar á bug. Innlent 5.12.2024 12:08
Almennum borgurum útrýmt af ásetningi Ísraelar hafa framið hópmorð af ásettu ráði á Gasa samkvæmt nýrri skýrslu Amnesty International. Framkvæmdastjóri Íslandsdeildar samtakanna segir gögn og vitnisburði sýna ótvírætt fram á þetta og kallar eftir sterkum viðbrögðum alþjóðasamfélagsins og íslenskra stjórnvalda. Innlent 5.12.2024 12:02
Drónaflugmenn þurfa nú að skrá sig Allir drónaflugmenn þurfa nú að skrá sig á þar til gerðri vefsíðu og flugmenn dróna sem vega meira en 250 grömm þurfa að taka próf og fá hæfnivottorð. Innlent 5.12.2024 12:00
Valkyrjur fá til sín sérfræðinga í Smiðju Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um tilraunir til þess að mynda nýja ríkisstjórn. Innlent 5.12.2024 11:38
Halla Hrund og Karl Gauti oftast strikuð út í Suðurkjördæmi Fimm af sex oddvitum flokkanna sem náðu inn á þing í Suðurkjördæmi raða sér í efstu sæti listans yfir þá frambjóðendur sem oftast var strikað yfir í kosningum til alþingis. Oddviti flokksins sem er stærstur í kjördæminu er ekki þeirra á meðal. Innlent 5.12.2024 11:11
„Hefur aldrei verið neitt persónulegt“ Dagur B. Eggertsson, nýkjörinn þingmaður og fyrrverandi borgarstjóri, og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, líka nýkjörinn þingmaður og fráfarandi borgarfulltrúi, hafa lengst af verið í sitt hvoru liðinu. Dagur hefur verið í meirihluta í borginni en Kolbrún í minnihluta. Nú eru flokkar þeirra, Samfylking og Flokkur fólksins, hins vegar í stjórnarmyndunarviðræðum. Innlent 5.12.2024 11:04
Tveggja bíla árekstur við Holtagarða Betur fór en á horfðist þegar sendibíll og fólksbíll rákust á við gatnamót Sæbrautar og Holtavegar í austurhluta Reykjavíkur á tíunda tímanum. Enginn slasaðist alvarlega í árekstrinum. Innlent 5.12.2024 09:52
Vara við „gervistéttarfélagi“ og „svikamyllu“ Stéttarfélagið Efling hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við félaginu Virðingu, sem sagt er „gervistéttarfélag“. Félagið sé raunar svikamylla, rekin af atvinnurekendum í því skyni að skerða laun og réttindi starfsfólks. Innlent 5.12.2024 08:57
Þung bankhljóð heyrðust kvöldið áður en hjónin fundust látin Norðfirðingur á fimmtugsaldri sem er grunaður um að hafa myrt hjón á áttræðisaldri á heimili þeirra í Neskaupstað í ágúst fannst blóðugur í bíl hjónanna að aka um Snorrabraut í Reykjavík. Þar var hann handtekinn af sérsveitinni, en hann mun hafa verið með ýmsa muni í eigu hinna látnu með sér. Innlent 5.12.2024 08:05
Segja Ísraelsmenn fremja þjóðarmorð á Gaza Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International segja Ísraelsmenn hafa framið, og halda áfram að fremja, hópmorð gegn Palestínumönnum á Gaza. Hópmorð eru jafnan kölluð þjóðarmorð í daglegu tali. Samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna hafa ísraelsk stjórnvöld gengið fram í þeim tilgangi að útrýma Palestínubúum á Gaza. Erlent 5.12.2024 07:53
Tvö börn í lífshættu eftir skotárás í leikskóla í Kalíforníu Tvö börn á aldrinum fimm til sex ára eru lífshættulega særð eftir að hafa orðið fyrir skotum í skólanum sem þau sækja í Kalíforníu í Bandaríkjunum. Erlent 5.12.2024 07:37
Hvers vegna eru allir að tala um „borgaralega“ ríkisstjórn? Borgaraleg gildi, borgaralegir flokkar, og borgaraleg ríkisstjórn eru hugtök sem hafa verið áberandi í kosningabaráttunni og núna strax í kjölfar kosninga. Innlent 5.12.2024 07:03
Gular viðvaranir og varasamt ferðaveður á Austurlandi Gul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi klukkan átta fyrir hádegi í dag. Snjókoma, vindur og almennt slæmt veður til ferðalaga verður meginstefið í báðum landshlutum. Innlent 5.12.2024 06:53
Mögulegt að dregið hafi úr óróa Stöðug virkni var í eldgosinu á Sundhnúkagígaröðinni í nótt. Mögulega hefur gosórói farið lækkandi síðustu sólarhringa. Innlent 5.12.2024 06:40