Fréttir
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 334 ›
Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Frans páfi hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna veikinda sinna. Þar segist hann hafa trú á meðferðinni sem hann nú hlýtur á sjúkrahúsi í Róm. Erlent 23.2.2025 15:02
Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að tryggingafélagið Sjóvá eigi að greiða ungri konu rúmar tvær milljónir, auk vaxta, vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir þegar hún lenti í bílslysi á Hlíðarfjallsvegi við Akureyri. Ágreiningsefni málsins varðaði það hvort konan hefði átt að gera sér grein fyrir því hvort ökumaður bílsins væri ölvaður. Innlent 23.2.2025 15:01
Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Til greina kemur að Reykjavíkurborg kljúfi sig frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga í kjaraviðræðunum við kennara og geri sérsamninga við Kennarasamband íslands, ef marka má orðræðu nýs meirihluta í borgarstjórn. Innlent 23.2.2025 14:30
20 til 30 ný störf verða til í Árborg með tilkomu nýs öryggisfangelsis Nýtt öryggisfangelsi á Eyrarbakka mun þurfa jafn mikið af köldu og heitu vatni eins og þorpið á Stokkseyri eða Eyrarbakka eitt og sér. Núverandi fangelsi á Litla Hrauni verður lokað með tilkomu nýja fangelsisins, sem mun kosta um sautján milljarða króna í byggingu. Tuttugu til þrjátíu ný störf verða til í Árborg með nýja fangelsinu. Innlent 23.2.2025 14:05
Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Jens Garðar Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins gefur kost á sér í varaformannsembætti Sjálfstæðisflokksins. Innlent 23.2.2025 12:07
Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Gríðarleg skemmdarverk voru unnin á liðsrútu Aftureldingar í nótt. Rútan hefur verið í eigu félagsins síðan 2010 og segja forsvarsmenn félagsins að sorgin í samfélaginu sé mikil. Innlent 23.2.2025 11:46
Sameining sveitarfélaga á Suðurnesjum og stórleikur í körfunni Utanríkisráðherra segir kröfur Rússa, um að Úkraína verði vopnlaus og gangi ekki í ESB eða NATO, vera galnar. Evrópa þurfi að girða sig í brók í varnarmálum. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 23.2.2025 11:41
Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Bergljót Þorsteinsdóttir lyfjafræðingur var við störf í Austurbæjar Apóteki í Kópavogi síðastliðinn föstudagsmorgun, milli tíu og ellefu, þegar tvímenningar, líklega karl og kona, ruddust inn með byssu og piparúða og ætluðu að fremja rán. Innlent 23.2.2025 11:38
Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Evrópa fylgist grannt með Þjóðverjum þegar þeir ganga að kjörborðinu í dag. Skoðanakannanir benda til þess að Friedrich Merz, leiðtogi Kristilegra demókrata verði næsti kanslari. Erlent 23.2.2025 09:58
Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Sprengisandur er á sínum stað klukkan 10 þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti. Innlent 23.2.2025 09:32
Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Maður á fimmtugsaldri sem varð fyrir stunguárás á heimili sínu í Kópavogi á sunnudagsmorgni árið 2022 segist hafa óttast um son sinn sem var í næsta herbergi á meðan árásin átti sér stað. Sonurinn hefði ekki ráðið við árásarmanninn. Innlent 23.2.2025 09:26
Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Mannanafnanefnd samþykkti síðastliðinn fimmtudag fimm ný eiginnöfn og féllst á nýjar föðurkenningar. Hins vegar hafnaði nefndin einu nafni, Kjartann. Innlent 23.2.2025 08:38
Rigningarveður í kortunum Í nótt nálgaðist lægð landið sunnan úr hafi og býst Veðurstofan við því að hún muni stýra veðrinu í dag og á morgun. Veður 23.2.2025 07:55
Reyndist vera eftirlýstur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld eða nótt ökumann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þessi maður reyndist vera eftirlýstur í öðru máli. Hann var vistaður í fangaklefa. Innlent 23.2.2025 07:31
„Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Inga Sæland sagði í ræðu sinni á landsfundi Flokks fólksins að Morgunblaðið, sem hún kallaði málgagn auðmanna, hefði hamast á flokknum og sakað hann um þjófnað, óheiðarleika og vísvitandi blekkingar í tengslum við styrkjamálið svokallaða. Innlent 22.2.2025 23:28
Stór skjálfti í Bárðarbungu Stór skjálfti varð í norðvesturhluta Bárðarbungu. Fyrsta mat á stærð skjálftans er 5,1 og mældust þó nokkuð margir eftirskjálftar í kjölfar hans. Innlent 22.2.2025 21:45
Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Stefnt er að því að reisa stærðarinnar hús í Vogum, undir verslun og þjónustu fyrir íbúa Suðurnesja, íbúa höfuðborgarsvæðisins sem og túrista. Ráðgert er að húsið geti orðið allt að 30 þúsund fermetrar. Innlent 22.2.2025 21:00
Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Flokkur fólksins vill breyta Landsbankanum í samfélagsbanka, efla strandveiðikerfið og lögfesta skyldu til íslenskukennslu fyrir börn og fullorðna sem flytja til landsins. Innlent 22.2.2025 20:59
Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Velta barna á veðmálasíðum hefur fimmfaldast á milli ára en Íslandsbanki hefur lokað á innlagnir ungmenna á slíkar síður. Forstöðumaður greiðslukortaviðskipta bankans segir aðgengi barna að síðunum of greitt. Innlent 22.2.2025 19:16
Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Háttsettur embættismaður Hamas segir samtökin reiðubúin að láta af stjórn Gaza og fagnar hann hugmyndum Egypta um óháða nefnd sem myndi fara með stjórn svæðisins. Erlent 22.2.2025 18:26
Veðmál barna og verslunarmiðstöð í Vogum Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar sveitarfélaga í kjaradeilunni við kennara, segir ekkert til í ásökunum formanns Kennarasambands Íslands um að flokkapólitík hafi haft áhrif á að þau höfnuðu innanhússtillögu ríkissáttasemjara í gær. Rætt verður við Ingu Rún í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 22.2.2025 18:07
Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Maður sem var gripinn við búðarhnupl í verslun og neitaði að segja til nafns reyndist vera eftirlýstur þegar búið var að flytja hann á lögreglustöð. Innlent 22.2.2025 18:01
Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að málefnasamningur nýs meirihluta í Reykjavík sé ófjármagnað, ókostnaðarmetið og ótímasett orðagjálfur. Hún óskar nýjum meirihluta góðs gengis en neitar því ekki að fimm flokka vinstri meirihluti sé mynstur sem hugnist henni síst. Innlent 22.2.2025 17:01
Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir það vonbrigði að ríkisstjórnin hafi ákveðið að fresta áformum um breytingar á tollflokkun pítsaosts íblönduðum jurtaolíu. Hann segir fyrri ríkisstjórn hafa keyrt málið í gegn án samráðs við nokkurn mann nema Mjólkursamsöluna og Bændasamtökin. Innlent 22.2.2025 15:56
Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Þingmenn úr Sjálfstæðisflokki, Miðflokki og Framsóknarflokki hafa lagt fram beiðni um skýrslu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um lokun austur/vesturbrautar Reykjavíkurflugvallar. Innlent 22.2.2025 14:49
Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga í kjaradeilunni gegn kennurum, segir ekkert til í ásökunum formanns Kennarasambands Íslands um að Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn standi í vegi fyrir samningum til að koma höggi á ríkisstjórnina. Innlent 22.2.2025 13:55
Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Tíu ára stelpa frá Vík í Mýrdal tekur þátt í úrslitakeppni barna í Eurovision, sem fer fram í Danmörku í kvöld í beinni útsendingu í Danska ríkissjónvarpinu. Stelpan ásamt danskri vinkonu sinni sömdu bæði lag og texta lagsins, sem þær flytja í átta manna úrslitum keppninnar en alls tóku um 750 börn þátt í undankeppninni. Innlent 22.2.2025 13:04
Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Landsfundur Flokks fólksins hefur lagt blessun sína yfir breytingar á samþykktum flokksins sem gera honum kleift að verða skráður sem stjórnmálasamtök hjá skattinum. Styrkjamálinu svokallaða er því lokið af hálfu flokksins, að sögn framkvæmdastjóra. Innlent 22.2.2025 12:24
Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Þingmaður Samfylkingarinnar hefur lagt til við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþngis að hún fari fram á stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á lokun annarrar flugbrautar Reykjavíkurflugvallar. Það sé með öllu óásættanlegt að flugbrautinni hafi verið lokað. Innlent 22.2.2025 12:21
Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Þingmaður Samfylkingarinnar hefur lagt til við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fari fram á stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á aðdraganda þess að annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar var lokað. Málið sé með öllu óásættanlegt. Innlent 22.2.2025 11:43