Fréttir

„Get ég komið fjór­tán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“

Ætla má að sakborningar í Dettifossmálinu hefðu getað búið til um 8,6 kíló af amfetamíndufti úr fjórtán lítrum af ætluðum amfetamínvökva sem þeir eru sakaðir um að flytja inn, að sögn dómskvadds matsmanns. Þeim er gefið að sök að flytja inn amfetamínvökvann í fjórum Absolut-vodkaflöskum en óskýrt er hversu stórar þær flöskur eru.

Innlent

Koma af fjöllum varðandi á­form borgarinnar

Talsmenn Félags múslíma á Íslandi og rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar hér á landi segjast alfarið koma af fjöllum hvað varðar áform Reykjavíkurborgar um að afturkalla lóðarúthlutun til trúfélaganna. Félögin segja ekkert erindi þess efnis hafa borist frá borginni.

Innlent

Rúm­lega þúsund far­þegar fært til flug og enginn sátta­fundur í kjara­deilu

Fjölbreyttur hádegisfréttatími er framundan á Bylgjunni á slaginu tólf. Þar verður fyrst greint frá stöðunni í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair, en nú hafa rúmlega þúsund farþegar Icelandair fært flug sitt vegna fyrirhugaðs verkfalls flugvirkja. Enginn sáttafundur hefur verið boðaður en verkfallið á að hefjast á miðnætti aðfaranótt næsta miðvikudags. Deilt er um leiðréttingu kjara gagnvart viðmiðunarstéttum.

Innlent

„Þetta snýst um full­veldi“

Dýpra samstarf Kanada og Evrópu er nauðsynlegt til að sporna gegn því að stærri og öflugri ríki grafi undan fullveldi smærri þjóða. Þetta sagði Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í ræðu sem hann hélt á Evrópuþinginu í morgun. Þar tók hann vel í tillögu um að Kanada yrði fyrsta ríkið til að hljóta aukaaðild að Evrópusambandinu.

Erlent

Drengirnir hafi látið vita af sér

Drengirnir tveir sem lýst var eftir í morgun hafa látið vita af sér en lögregla leitar þeirra enn. Strákarnir eru fimmtán og fjórtán ára. Lögregla lýsti eftir þeim að beiðni barnaverndar en þeir fóru frá heimilum sínum fyrir fjórum dögum, á sunnudag. 

Innlent

Sænskur stórglæpon hand­samaður í Marokkó

Fulltrúar Interpol handtóku Ali Namdar, einn leiðtoga Foxtrot-glæpasamtakanna í Svíþjóð, í Marokkó í gær. Hann er grunaður um að hafa lagt á ráðin um fjölda ofbeldisverka, þar á meðal sprengju- og skotárásir á Norðurlöndunum.

Erlent

„Ég er hrein­lega mjög hrædd“

„Það sem er mér kannski efst í huga er hversu margir þurfa að víkja fyrir eina manneskju,“ segir fráfarandi fagstjóri á Vík um formann SÁÁ. „Hún er tilbúin að sitja sem fastast þrátt fyrir að spilaborgin sé að hrynja í kringum hana og hún ætlar samt ekki að fara neitt. Það er í rauninni magnað að sjá hvernig hún telur sér trú um að hún geti endurvakið traust starfsmanna.“

Innlent

Hlaut Náttúru­verndar­viður­kenningu Sig­ríðar í Bratt­holti

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, afhenti í gær Andra Snæ Magnasyni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Viðurkenningin er veitt á Degi íslenskrar náttúru einstaklingi sem unnið hefur markvert starf á sviði náttúruverndar og var þetta í sautjánda sinn sem hún var afhent.

Innlent

Sam­þykktu frum­varp Grahams einu og hálfu ári seinna

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi frumvarp sem snýst um umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Frumvarpið var lagt fram af hinum látna öldungadeildarþingmanni Lindsey Graham fyrir nærri því einu og hálfu ári síðan.

Erlent

Geti fundið Tækni­skólanum góðan stað á Akur­eyri

Berglind Ósk Guðmundsdóttir segir Akureyrarbæ til í að ræða það að nýr Tækniskóli verði byggður á Akureyri. Samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans um uppbyggingu í Hafnarfirði fór um þúfur og er óvissa um það hvar skólinn verður í framtíðinni.

Innlent

Skýjað og dá­lítil væta víðast hvar

Í dag er spáð norðvestan 5-13 metrum á sekúndu, hvassast við suðvestur- og vesturströndina, en hægari breytileg átt austantil. Þá á að vera skýjað með köflum á Suðaustur- og Austurlandi, annars skýjað og dálítil væta. Hiti verður á bilinu sjö til 14 stig, svalast fyrir norðan.

Veður

Hjólahvíslarinn og lög­reglan björguðu Latabæ

Minnstu mátti muna að saga Latabæjar hefði glatast og búningur Sollu Stirðu í þokkabót þegar óprúttnir þjófar brutust inn á vinnustofu Magnúsar Scheving í miðbæ Reykjavíkur í fyrrinótt. Lögregla var fljót að hafa uppi á þjófunum með aðstoð þekktasta hjólahvíslara landsins.

Innlent

Með lambúshettu að prófa sí­renur og gjallar­horn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sat sannarlega ekki með hendur í kjöltu á kvöld- og næturvakt og var 61 mál skráð í kerfi sínu. Meðal annars þurfti að sinna útköllum vegna slagsmála annars vegar miðsvæðis í borginni, þegar þremur lenti saman á bensínstöð, og hins vegar í umdæmi lögreglunnar í Grafarholti þar sem tilkynnt var um slagsmál milli ungmenna.

Innlent

Hótar háum tollum og að hætta við­skiptum við ESB

Donald Trump segir að það að hleypa Kanada inn í Evrópusambandið með einhverjum hætti gæti verið „fjandsamlegt“ gagnvart Bandaríkjunum. Forsetinn hótar því að beita ESB enn frekari tollum og jafnvel hætta viðskiptum við Evrópu á einhverjum sviðum.

Erlent

Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð

Kash Patel, forstjóri Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) lenti í miklu orðaskaki við öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins í gær. Þar gaf hann meðal annars í skyn að hann myndi senda starfsmenn stofnunarinnar á kjörstaði í þingkosningunum í nóvember og reifst við þá um af hverju hann hefur sagt upp fjölmörgum starfsmönnum sem komu að því að rannsaka Donald Trump, forseta.

Erlent

Báðir að­stoðar­mennirnir horfnir á stuttum tíma

Þórólfur Heiðar Þorsteinsson hefur kvatt Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og lét formlega af störfum sem aðstoðarmaður hennar í ágúst. Hann er annar aðstoðarmaðurinn sem yfirgefur hana á stuttu tímabili en Jakob Birgisson hætti fyrr á þessu ári.

Innlent