Handbolti
286 287 288 289 290 291 292 293 … 293 ›
Fram í riðil með Gummersbach Í morgun var dregið í riðla fyrir Meistaradeild Evrópu í handbolta þar sem Íslandsmeistarar Fram fara beint inn í riðlakeppnina. Útkoman úr drættinum var afar athyglisverð fyrir Fram sem dróst í riðil með Gummersbach sem Alfreð Gíslason mun stýra. Handbolti 29.7.2006 20:37
Gæti ekki verið sáttari Landsliðsmaðurinn Logi Geirsson hefur framlengt samning sinn við þýska liðið Lemgo til ársins 2010. Logi hefur verið óheppinn með meiðsli á síðustu misserum, en er nú að ná fullum styrk og er yfir sig ánægður með lífið og tilveruna eins og hans er von og vísa. Sport 26.7.2006 20:57
Viggó Sigurðsson tekur við liði Flensburg Viggó Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Flensburg til bráðabirgða í kjölfar þess að þjálfari liðsins, hinn sænski Kent-Harry Andreson þarf að fara í uppskurð. Viggó þjálfaði lið Wuppertal í Þýskalandi um miðjan síðasta áratug. Sport 24.7.2006 15:23
Sigfús kvaddi heimavöllinn með stæl Magdeburg komst í kvöld upp að hlið Lemgo í fjórða sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta þegar liðið lagði nýkrýnda meistara Kiel 37-36 í hörkuleik. Sigfús Sigurðsson átti sinn besta leik fyrir Magdeburg í langan tíma og skoraði 6 mörk í sínum síðasta heimaleik fyrir félagið. Tap Kiel kom í veg fyrir að liðið setti stigamet í úrvalsdeildinni. Sport 27.5.2006 20:39
Guðjón Valur fór á kostum Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum og skoraði 10 mörk fyrir lið sitt Gummersbach í dag þegar liðið gerði jafntefli 31-31 við Flensburg. Róbert Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Gummersbach í leiknum, en liðið er í öðru sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. Sport 27.5.2006 16:50
Kiel meistari Kiel tryggði sér í kvöld Þýskalandsmeistaratitilinn í handbolta með sannfærandi sigri á Íslendingaliði Lemgo 37-28 á heimavelli sínum. Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað í markaskorun hjá Lemgo og Logi Geirsson gat ekki leikið vegna veikinda. Á sama tíma tapaði Flensburg fyrir Kronau 26-24. Sport 23.5.2006 19:39
Markús Máni með eitt mark i sigri Düsseldorf Markús Máni Michaelsson skoraði eitt mark fyrir Düsseldorf sem lagði Großwallstadt, 26-18 í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag. Einar Hólmgeirsson skoraði 5 mörk fyrir Großwallstadt og Alexander Petersson tvö. Á Spáni skoraði Einar Örn Jónson 5 mörk fyrir Torrevieja sem vann 29-33 útisigur á Cantabria. Sport 21.5.2006 18:04
Ciudad tapaði úrslitaleiknum Nýkrýndir Evrópumeistarar Ciudad Real töpuðu úrslitaleiknum í spænska bikarnum í dag fyrir liði Valladolid 35-30. Ólafur Stefánsson skoraði 3 mörk fyrir Ciudad í leiknum. Sport 14.5.2006 21:01
Logi skoraði 6 mörk í sigri Lemgo Íslendingaliðið Lemgo vann góðan 30-25 sigur á sterku liði Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Logi Geirsson skoraði 6 mörk fyrir Lemgo, en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað. Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Sport 9.5.2006 20:39
Ólafur Stefánsson Evrópumeistari í annað sinn Ólafur Stefánsson vann í dag sigur í meistaradeildinni í handbolta í annað sinn á ferlinum þegar lið hans Ciudad Real frá Spáni vann auðveldan sigur á löndum sínum í Portland San Antonio 37-28. Staðan í hálfleik var 21-11 fyrir heimamenn og eftir sannfærandi sigur í fyrri leiknum, var titillinn þá nánast í höfn. Ólafur skoraði 7 mörk í leiknum í dag og var einn af betri mönnum Ciudad í úrslitaeinvíginu. Sport 30.4.2006 17:59
Lemgo Evrópumeistari Logi Geirsson og félagar í Lemgo sigruðu Göppingen í dag í síðari leik liðanna í úrslitum EHF-keppninnar í handbolta 25-22 á heimavelli sínum. Logi fór fyrir sínum mönnum og skoraði 8 mörk í leiknum og félagi hans Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 1 mark. Sport 30.4.2006 17:28
Ciudad Real unnu á útivelli Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar, unnu öruggan sigur á Portland San Antonio í fyrri leik liðanna í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta 25-19. Ólafur Stefánsson og Miza Dzomba skoruðu fimm mörk hvor og voru markahæstir en lykillinn að sigri Ciudad var sterkur varnarleikur. Sport 22.4.2006 18:01
Lemgo burstaði Göppingen Þrír leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lemgo burstaði Göppingen 32-23. Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoruðu 3 mörk hvor fyrir Lemgo, en Jaliesky Garcia Padron skoraði 7 mörk fyrir Göppingen. Kiel vann auðveldan útisigur á Lubbecke 40-31, þar sem Þórir Ólafsson skoraði 6 mörk fyrir Lubbecke og var markahæstur sinna manna. Sport 19.4.2006 20:01
Grosswallstadt burstaði Gummersbach Íslendingaliðin Grosswallstadt og Gummersbach áttust við í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og er skemmst frá því að segja að Grosswallstadt valtaði yfir andstæðinga sína 32-20. Einar Hólmgeirsson skoraði 7 mörk fyrir Grosswallstadt og Alexander Petersson skoraði 5 mörk. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson skoraði 3 mörk. Sport 18.4.2006 21:25
Hamburg bikarmeistari Lið Hamburg varð í dag bikarmeistari í þýska handboltanum þegar liðið skellti Kronau/Östringen í úrslitaleik 26-25. Hamburg hefur komið nokkuð á óvart í keppninni og sló meðal annars Íslendingalið Magdeburg úr keppni í undanúrslitum í gær. Sport 9.4.2006 18:21
Hamburg og Kronau/Östringen í úrslit bikarsins Óvænt úrslit urðu í undanúrslitum þýska bikarsins í handbolta í dag þegar Krönau/Östringen lagði sterkt lið Kiel 33-31 og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Þar mun liðið mæta Hamburg sem sló Íslendingalið Magdeburg úr keppni 31-30. Úrslitaleikurinn fer fram strax á morgun. Sport 8.4.2006 15:42
Gummersbach lagði Lubbecke Fjórir leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Íslendingalið Gummersbach lagði Lubbecke 27-21. Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson skoruðu 5 mörk hvor fyrir heimamenn, en Þórir Ólafsson komst ekki á blað hjá Lubbecke. Sport 5.4.2006 20:58
Ólafur með fjögur mörk í sigri Ciudad Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Ciudad Real þegar liðið bar sigurorð af þýska liðinu Flensborg í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. Flensborg sá aldrei til sólar í leiknum og Ciudad fór með öruggan níu marka sigur af hólmi, 31-22. Sport 26.3.2006 17:46
Góður sigur Lemgo Lemgo vann í dag mikilvægan sigur á Gummersbach á útivelli 29-27 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Áskorendakeppni Evrópu í handbolta. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7 mörk fyrir heimamenn og Róbert Gunnarsson 1, en Logi Geirsson skoraði 4 mörk fyrir Lemgo, sem er nú með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn. Sport 25.3.2006 19:43
Gummersbach á toppinn Íslendingaliðið Gummersbach skaut sér á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið bar sigurorð af Delitzsch á útivelli í gær 23-22. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson skoraði 2. Gummersbach er því efst í deildinni, en Kiel og Flensburg koma þar skammt á eftir og eiga tvo og þrjá leiki til góða. Sport 22.3.2006 17:42
Óli Stef með fjögur í sigri Ciudad Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörk fyrir Ciudad Real sem vann fimm marka sigur á Valladolid, 34-29 í spænska handboltanum í gærkvöldi. Ciudad er í 3. sæti úrvalsdeildarinnar með 36 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona. Sport 19.3.2006 12:27
Guðjón Valur raðar inn mörkunum Guðjón Valur Sigurðsson var maður leiksins og skoraði 13 mörk eða um helming marka sinna manna þegar lið hans Gummersbach marði eins marks sigur á Kronau/Östringen, 27-26 í þýsku Bundesligunni í handbolta í gærkvöldi. Guðjón er langmarkahæsti leikmaðurinn í deildinni með 197 mörk. Sport 19.3.2006 12:21
Auðveldur sigur hjá Magdeburg Einn leikur var á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Magdeburg valtaði yfir Delitzsch 37-20 á heimavelli sínum. Línumaðurinn Sigfús Sigurðsson skoraði þrjú mörk fyrir Magdeburg, en Arnór Atlason kom ekki við sögu í leiknum enda meiddur. Sport 17.3.2006 21:08
Góð endurkoma Markúsar Mána Markús Máni Michaelsson átti vel heppnaða endurkomu með liði sínu Dusseldorf í þýsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið lagði Snorra Stein Guðjónsson og félaga í Minden 35-27. Markús hefur verið frá keppni í nokkra mánuði vegna meiðsla. Snorri Steinn skoraði 4 mörk fyrir Minden og Markús skoraði 3 fyrir Dusseldorf. Sport 12.3.2006 18:53
Lemgo hafði betur í Íslendingaslagnum Logi Geirsson og félagar í Lemgo unnu góðan sigur á Guðjóni Val Sigurðssyni og félögum í Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag 28-26. Logi skoraði 1 mark fyrir Lemgo og Ásgeir Örn komst ekki á blað, en Guðjón Valur skoraði 8 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson var með 5 mörk. Sport 11.3.2006 16:20
Magdeburg lagði Lemgo Magdeburg, lið Sigfúsar Sigurðssonar og Arnórs Atlasonar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, bar í kvöld sigurorð af Lemgo 30-28. Logi Geirsson skoraði 4 mörk fyrir Lemgo í leiknum og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 2, en Íslendingarnir hjá Magdeburg komust ekki á blað í leiknum. Sport 8.3.2006 20:59
Göppingen lagði Minden Jaliesky Garcia skoraði tvö mörk fyrir lið sitt Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöld þegar liðið vann nauman sigur á Snorra Steini Guðjónssyni og félögum í Minden 30-29 á útivelli. Snorri skoraði einnig tvö mörk fyrir Minden, sem er sem fyrr í botnbaráttu í deildinni á meðan Göppingen siglir lygnan sjó um miðja deild. Sport 8.3.2006 05:48
Íslendingaslagur í Evrópukeppninni Nú er búið að draga í undanúrslit Evrópukeppnanna í handbolta og þar ber hæst að Íslendingaliðin Lemgo og Gummersbach munu leika til undanúrslita í EHF keppninni, en hinn undanúrslitaleikurinn er reyndar einnig Íslendingaslagur. Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real mæta þýska liðinu Flensburg í Meistaradeildinni. Sport 7.3.2006 14:52
Creteil í undanúrslit þrátt fyrir 8 marka tap Franska liðið Creteil komst í kvöld í undanúrslit Evrópukeppni félagsliða í handbolta þrátt fyrir 8 marka tap fyrir pólska liðinu Kielce, 26-34. Creteil vann reyndar fyrri leikinn með 14 marka mun, 35-21 en athygli vekur að pólska liðið skoraði 23 mörk í seinni hálfleik í viðureign liðanna í kvöld. Staðan í hálfleik var 12-11 fyrir Creteil. Sport 5.3.2006 19:59
Lemgo í undanúrslitin Ásgeir Örn Hallgrímsson og Logi Geirsson skoruðu 4 mörk hvor þegar lið þeirra Lemgo komst í undanúrslit Evrópukeppni félagsliða í handbolta í dag. Lemgo lagði rússneska liðið Dynamo Astrakhan á útivelli 33-31 en þetta var síðari leikur liðanna. Sport 5.3.2006 15:03