Körfubolti
184 185 186 187 188 189 190 191 192 … 216 ›
Keppnistreyja Dwayne Wade vinsælust Það kemur nokkuð á óvart að þegar listinn yfir söluhæstu treyjur NBA leikmanna í Bandaríkjunum er skoðaður, er það treyja merkt bakverðinum Dwayne Wade hjá Miami sem er í efsta sætinu. Listinn er byggður á sölu í NBA búðinni á Manhattan í New York, sem og á sölu á heimasíðu deildarinnar, NBA.com. Sport 14.12.2005 21:37
Riley stýrði Miami til sigurs í fyrsta leik Miami Heat bar sigurorð af Chicago Bulls í nótt í fyrsta leik Pat Riley sem þjálfara, en hann tók við af Stan Van Gundy á dögunum eftir að sá síðarnefndi ákvað að hætta af fjölskylduástæðum. Riley og félagar þurftu að hafa nokkuð fyrir sigrinum, en þriggja stiga skot frá Chicago sem hefði getað jafnað leikinn á lokasekúndunni vildi ekki ofan í. Sport 14.12.2005 12:19
Grant Hill væntanlega með Orlando í nótt Framherjinn Grant Hill leikur að öllum líkindum sinn fyrsta leik á tímabilinu með Orlando Magic í kvöld þegar liðið sækir New York heim. Hill hefur verið frá keppni síðan í haust vegna kviðslits og þurfti í aðgerð vegna þessa í endaðan október. Þetta eru góð tíðindi fyrir Orlando liðið, því flestir lykilmanna liðsins hafa misst úr leiki í vetur vegna meiðsla og gengið því verið brösótt. Sport 13.12.2005 20:14
Detroit lá í Utah Fimm leikir voru háðir í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar bar hæst að sjóðheitt lið Detroit Pistons tapaði óvænt fyrir Utah Jazz á útivelli. Kobe Bryant tryggði LA Lakers sömuleiðis óvæntan sigur á Dallas Mavericks með þriggja stiga körfu í lokin og Phoenix lá fyrir New Orleans á heimavelli sínum. Sport 13.12.2005 12:18
Tap hjá Leverkusen Það gengur vægast sagt erfiðlega hjá félagi Jakobs Sigurðarsonar í þýska körfuboltanum þessa dagana, en í gær tapaði liðið enn einum leiknum og er liðið sem stendur næstneðst í deildinni. Jakob skoraði 3 stig í gær þegar liðið tapaði fyrir Bonn 94-85. Sport 12.12.2005 14:38
Van Gundy segir af sér Samkvæmt heimildum frá ESPN í Bandaríkjunum hefur Stan Van Gundy, þjálfari Miami Heat, sagt starfi sínu lausu hjá félaginu og er hættur. Búist er við að formleg tilkynning frá félaginu berist síðar í kvöld, en þetta leiðir líkum að því að forseti félagsins, Pat Riley, ætli sjálfur að setjast í þjálfarastólinn og taka við liðinu en hann gerði LA Lakers að meisturum oftar en einu sinni á sínum tíma. Sport 12.12.2005 14:46
Sjötti sigur Detroit í röð Detroit Pistons heldur fast í toppsætið í NBA deildinni í körfubolta og í nótt vann liðið góðan útisigur á spútnikliði LA Clippers, þrátt fyrir stórleik frá Elton Brand. Shaquille O´Neal sneri aftur úr meiðslum hjá Miami Heat og hjálpaði liðinu að ná sigri gegn Washington í framlengingu. Sport 12.12.2005 12:59
LeBron með 52 stig Það urðu heldur betur óvænt úrslit í NBA körfuboltanum í nótt þegar Atlanta Hawks unnu meistarana í San Antonio Spurs, 94-84 eftir sjö tapleiki í röð. Hinn tvítugi LeBron James gerði sér lítið fyrir og skoraði 52 stig fyrir Cleveland Cavaliers sem tapaði fyrir Milwaukee. Sport 11.12.2005 13:13
Kominn með skjöld og byssu Krimmarnir í Miami mega gæta sín því lögreglan í Miami var að útskrifa stærsta lögregluþjón heimsins, Shaquille O"Neal. Shaq neitaði að sverja eiðinn með hinum lögreglumönnunum sem voru að útskrifast þar sem hann vildi ekki skyggja á stóra daginn þeirra. Sport 10.12.2005 20:21
Hengir upp treyju númer 33 Chicago Bulls heiðraði framlag Scottie Pippens til félagsins þegar það ákvað að hengja treyju númer 33 upp í rjáfur og verður hún þar af leiðandi ekki notuð aftur. Treyjan var hengd upp í leikhléi á leik Bulls og Lakers og Pippen átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hann ávarpaði áhorfendur. Sport 10.12.2005 20:21
Iverson með 43 stig Allen Iverson skoraði 43 stig og Kyle Korver jafnaði presónulegt stigamet með 26 stigum fyrir Philadelphia 76ers í NBA körfuboltanum í nótt þegar liðið batt enda á fjögurra leikja samfellda ósigurgöngu sína með 119-115 sigri á Charlotte Bobcats. 10 leikir fóru fram í deildinni í nótt. Sport 10.12.2005 14:01
Fékk leyfi vegna dauða bróður síns Bakvörðurinn Quentin Richardson hjá New York á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, en hann hefur fengið tímabundið leyfi frá liðinu eftir að bróðir hans var myrtur í Chicago á dögunum. Bróðir hans, Lee Richardson, varð fyrir því óláni að verða á vegi miskunnarlausra ræningja sem hófu skothríð þegar þeir lögðu á flótta og lést Lee af skotsárum sínum. Árásarmennirnir náðust allir og hafa verið ákærðir. Sport 9.12.2005 14:51
Indiana burstaði Washington Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Indiana Pacers burstaði Washington Wizards 111-87, en Indiana lék án Ron Artest sem er meiddur. Þá vann Houston Rockets góðan útisigur á Sacramento 106-95, en Sacramento hefur nú tapað 5 leikjum í röð. Sport 9.12.2005 14:43
Auðveldur sigur San Antonio Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar San Antonio burstuðu Orlando á útivelli og unnu þar með fjórða leikinn í röð, en tap Orlando var hið fjórða í röð. Liðið var sem fyrr án Steve Francis, leikstjórnanda síns, og munar um minna. Sport 6.12.2005 16:41
Tap hjá Jakob og Loga Íslensku leikmennirnir í þýska körfuboltanum áttu ekki gott kvöld í gær þegar lið þeirra lágu í valnum. Leverkusen, lið Jakobs Sigurðarsonar, tapaði fyrir Trier 97-95 í úrvalsdeildinni og Logi Gunnarsson og félagar í Bayreuth máttu þola stórtap 97-67 fyrir Ulm í 2. deildinni. Jakob skoraði 9 stig fyrir sitt lið, en Logi var með 11 stig. Sport 5.12.2005 15:16
Sjötti sigur Phoenix í röð Endurkoma Joe Johnson til Phoenix með nýja liðinu sínu Atlanta varð ekki ferð til fjár því eins og búast mátti við vann Phoenix áreynslulítinn sigur 112-94. Phoenix leiddi lengst af með 30 stiga mun, en gat leyft varamönnunum að spreyta sig í lokaleikhlutanum, þar sem Atlanta náði að klóra aðeins í bakkann og láta lokatölurnar líta betur út á pappírunum. Sport 5.12.2005 14:41
Toronto vann annan leikinn í röð Heillum horfið lið Toronto Raptors virðist vera að finna taktinn og vann annan leik sinn í röð í deildinni í nótt þegar liðið skellti New Jersey á útivelli. Þá áttust við leikmenn mánaðarins í NBA deildinni þegar Cleveland sótti LA Clippers heim. Sport 4.12.2005 14:35
Jón Arnór og félagar á toppinn Landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson skoraði 5 stig fyrir lið sitt Napoli á Ítalíu í úrvalsdeildinni þar í landi í gær, þegar það bar sigurorð af Avellino 92-61 og skaust þar með á topp deildarinnar. Sport 3.12.2005 17:10
Fimmti sigur Phoenix í röð Tólf leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Í sjónvarpsleiknum á Sýn tók Phoenix á móti Denver og vann góðan sigur 102-97. Shawn Marion skoraði 22 stig fyrir Phoenix, en Marcus Camby var frábær í liði Denver og skoraði 33 stig og hirti 20 fráköst. Sport 3.12.2005 14:13
Phoenix - Denver í beinni á Sýn Það verður mikið um dýrðir fyrir áhugamenn um NBA körfuboltann í nótt, því Sýn verður með beina útsendingu frá leik Phoenix Suns og Denver Nuggets klukkan tvö eftir miðnætti, en þar að auki verður leikur Golden State Warriors og Charlotte Bobcats sýndur í beinni á NBA TV klukkan 03:30. Sport 2.12.2005 21:42
Brian Grant verður frá í þrjá mánuði Framherjinn sterki Brian Grant hjá Phoenix Suns verður frá keppni í þrjá mánuði eftir að ljóst varð að hann þyrfti að fara í aðgerð vegna hnémeiðsla. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir Phoenix, sem einnig er án Amare Stoudemire vegna svipaðra meiðsla. Grant er 33 ára gamall og er á sínu tólfta ári í deildinni. Sport 2.12.2005 16:49
San Antonio lagði Dallas Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. San Antonio Spurs lagði Dallas Mavericks á útivelli 92-90. Tony Parker skoraði 30 stig fyrir Spurs, en Marquis Daniels skoraði 24 stig fyrir Dallas. Þá vann LA Lakers góðan sigur á Utah Jazz í framlengingu 105-101 í Utah. Kobe Bryant skoraði 30 stig fyrir Lakers, en Deron Williams skoraði 20 fyrir Jazz. Sport 2.12.2005 13:43
Fær tveggja leikja bann fyrir kjaftbrúk George Karl, þjálfari Denver Nuggets í NBA deildinni, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að lesa dómurum pistilinn eftir að lið hans tapaði á heimavelli fyrir New Orleansí fyrrakvöld. Denver ætlar ekki að áfrýja dómnum. Sport 1.12.2005 14:17
Nash heitur í sigri Phoenix á Indiana Verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar í fyrra, Steve Nash hjá Phoenix Suns, skoraði sjö þriggja stiga körfur þegar lið hans lagði Indiana Pacers í nótt og vann fjórða leik sinn í röð. Allen Iverson hélt uppteknum hætti og skoraði 40 stig gegn Boston, en það nægði ekki til sigurs. Sport 1.12.2005 08:16
Vill spila meira eða ekki neitt Vandræðagemlingurinn Ruben Patterson hjá Portland Trailblazers á í harðvítugum deilum við þjálfara sinn og forráðamenn félagsins þessa dagana. Nate McMillan, þjálfari liðsins, gróf Patterson á varamannabekk liðsins í byrjun tímabils, sem varð til þess að leikmaðurinn bölvaði honum í sand og ösku og var settur í bann í kjölfarið. Sport 30.11.2005 17:24
McGrady sneri aftur og færði Houston sigur Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Tracy McGrady sneri aftur með liði Houston Rockets, sem hafði tapað sjö leikjum í röð og það var ekki að sökum að spyrja, liðið vann stórsigur á Atlanta Hawks. Sport 30.11.2005 14:13
Aðstoðarþjálfararnir tilkynntir Í gær var tilkynnt hvaða menn munu gegna stöðum aðstoðarþjálfara Mike Krzyzewski hjá bandaríska landsliðinu í körfubolta fyrir heimsmeistaramótið á næsta ári og fyrir Ólympíuleikana í Peking árið 2008. Sport 29.11.2005 19:11
Orlando vann fjórða leikinn í röð Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Orlando Magic vann fjórða leik sinn í röð þegar liðið skellti Boston á útivelli, en Dallas Maverics vann mjög nauman sigur á botnliði Toronto Raptors og þurfti flautukörfu í lokin til að tryggja sigurinn. Sport 29.11.2005 15:43
Stórleikur Loga Gunnarssonar Logi Gunnarsson var heldur betur í stuði í gær þegar hann skoraði 29 stig fyrir lið sitt Bayeruth í þýsku 1. deildinni, þegar það lagði Lich á útivelli 87-81. Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig fyrir Napoli sem sigraði Siena í ítölsku A-deildinni í gær og er lið hans í öðru sæti í deildinni. Sport 28.11.2005 18:00
Stórleikur Kobe Bryant dugði skammt Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt sem leið og þar bar hæst einvígi Los Angeles Lakers og New Jersey Nets, þar sem Kobe Bryant skoraði 38 stig í síðari hálfleik fyri Lakers og 46 stig alls, en það dugði ekki til sigurs eins og oft áður í vetur. Sport 28.11.2005 17:13