Kauphöllin
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 78 ›
Kaldvík skráð á markað Kaldvík, áður Ice Fish Farm, var tekið til viðskipta í dag á First North vaxtarmarkaði Nasdaq Iceland klukkan 9.30 við opnun markaða. Viðskipti innlent 29.5.2024 09:54
Árangur Alvotech bendi til að félagið geti orðið „alþjóðlegur líftæknilyfjarisi“ Alvotech hefur fengið skuldbindandi pantanir á meira en milljón skömmtum af Simlandi-hliðstæðu sinni við Humira í Bandaríkjunum fyrir þetta ár, sem tryggir félaginu umtalsverða hlutdeild á þeim markaði að sögn Barclays, en bankinn hefur hækkað verðmat sitt á Alvotech og telur fyrirtækið á góðri leið með að verða alþjóðlegur líftæknilyfjarisi. Stjórnendur Alvotech vinna nú í endurfjármögnun á skuldum félagsins, sem nema yfir hundrað milljörðum, með það fyrir augum að lækka verulega fjármagnskostnað. Innherji 25.5.2024 12:45
Loðnubrestur hefur mikil áhrif en Síldarvinnslan er „hvergi bangin“ Loðnubrestur vó þungt í rekstri Síldarvinnslunnar á fyrsta ársfjórðungi eftir nokkur góð ár í veiðum á þeirri fisktegund. Á sama tíma hefur ríkt óvissa með rekstur bolfiskeiningar útgerðarinnar í Grindavík sem sömuleiðis dregur úr afkomu samanborið við fyrra ár. Markaðsvirði Síldarvinnslunnar hefur lækkað um nærri þrjú prósent í Kauphöllinni það sem af er degi. Innherji 24.5.2024 14:45
Fyrsta skipti sem skráning á Aðallista heppnast ekki Það var áhugi á að fá Íslandshótel á hlutabréfamarkað en ekki á því gengi sem var í boði við núverandi aðstæður. Innlánsvextir eru háir, fjárfestar hafa lagt ríflegt fé í hlutafjárútboð að undanförnu og því mikið fé „tekið af borðinu“ og horfur í ferðaþjónustu eru hóflegar fyrir sumarið. „Hvað á ég að selja til að fjárfesta í hótelkeðjunni?“ spurðu viðskiptavinir miðlara en í ljósi þess hve mörg önnur félög eru hagstætt verðlögð um þessar mundir var oft fátt um svör. Innherji 23.5.2024 17:40
Umfangsmikil hlutafjárútboð draga „töluvert máttinn“ úr markaðnum Hlutabréfamarkaðurinn hérlendis hefur verið þungur á meðan flestir markaðir sem horft er til hafa hækkað töluvert. Sjóðstjórar og aðrir markaðsaðilar segja að hlutabréfaverð hérlendis sé almennt nokkuð hagstætt en mikið fjármagn hefur leitað í frumútboð sem hefur dregið kraft úr markaðnum. Viðmælendur Innherja eiga ekki von á því að markaðurinn taki við sér fyrr en verðbólga hjaðnar og stýrivextir fara að lækka. Innherji 23.5.2024 07:41
Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Ákveðið hefur verið að hætta við hlutafjárútboð Íslandshótela og skráningu félagsins í Kauphöllina. Er það vegna þess að ekki fengust áskriftir fyrir öllum boðnum hlutum og hættu seljendur því við. Viðskipti innlent 22.5.2024 23:46
Alvotech sér fram á tvöfalt meiri rekstrarhagnað miðað við spár greinenda Eftir að Alvotech hækkaði verulega áætlun sína um tekjur og afkomu á þessu ári er útlit fyrir að EBITDA-hagnaður líftæknilyfjafélagsins verði um tvöfalt meiri en meðalspá greinenda hefur gert ráð fyrir. Fjárfestar tóku vel í uppfærða afkomuspá Alvotech, aðeins tveimur mánuðum eftir að hún var fyrst birt, en félagið ætti núna að vera ná því markmiði að skila umtalsverðu jákvæðu sjóðstreymi. Innherji 22.5.2024 15:59
Seðlabankinn og Kauphöllin stigu inn í viðræður Marels og JBT Kauphöllin og Fjármálaeftirlit Seðlabankans sagði stjórnendum Marels hinn 24. nóvember að það yrði að upplýsa um hver hefði lagt fram óskuldbindandi viljayfirlýsingu um tilboð í félagið. Ekki væri nóg að greina einungis frá tilvist þess. Í kjölfarið var tilkynnt til Kauphallarinnar að John Bean Technologies (JBT) væri tilboðsgjafinn en fyrirtækin tvö áttu í óformlegum viðræðum um samruna á árunum 2017 og 2018. Innherji 21.5.2024 18:16
Hækkar verðmat Amaroq sem er 38 prósent yfir markaðsverði Bandaríska fjármálafyrirtækið Stifel hefur hækkað markgengi sitt á auðlindafyrirtækinu Amaroq Minerals um tólf prósent frá því í febrúar. Meðal annars er bent að verð á gulli hafi hækkað um 15 prósent og að styttra sé að í að fyrirtækið fari að afla tekna. Í verðmatinu er gert ráð fyrir að það hagnist um tvo milljarða á næsta ári en fyrirtækið afli ekki tekna í ár. Innherji 16.5.2024 15:27
Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela á hlutabréfum félagsins fyrir skráningu á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hefst klukkan 10 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Samstarf 16.5.2024 09:31
Verðmetur Íslandshótel 45 prósentum yfir útboðsgengi fyrir minni fjárfesta Hlutafjárvirði Íslandshótela er metið á ríflega 41 milljarð króna samkvæmt nýrri verðmatsgreiningu vegna hlutafjárútboðs hótelkeðjunnar, umtalsvert meira sé miðað við útboðsgengið í tilfelli minni fjárfesta. Hlutabréfagreinandi telur að ferðaþjónustufyrirtækið, sem verður hið fyrsta til að fara á markað hér á landi, búi yfir tækifærum til vaxtar og tekjurnar fari að nálgast tuttugu milljarða á næsta ári. Innherji 15.5.2024 17:56
Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Eigendur og stjórn Íslandshótela hafa tilkynnt að samhliða útboði og skráningu félagsins á markað, verði öllu fastráðnu starfsfólki afhentir hlutir í félaginu að gjöf. Viðskipti innlent 14.5.2024 16:31
„Hvar er Gordon Gekko?“ er spurt í hagstæðu verðmati fyrir Icelandair Spákaupmenn virðast hafa yfirgefið Icelandair. Gengi flugfélagsins hefur helmingast á nokkrum mánuðum, óháð undirliggjandi verðmætum, segir í hlutabréfagreiningu en Icelandair er þar verðmetið langt yfir markaðsvirði. Íslenskur hlutabréfamarkaður er óskilvirkur um þessar mundir sem endurspeglist best með fasteignafélögin þar sem markaðsverð er langt undir varlega metnu bókfærðu virði. Fjárfestar virðast verðleggja þau „norður og niður“ rétt eins og Icelandair. Innherji 14.5.2024 14:09
Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Íslandshótel birtu í dag útboðslýsingu vegna fyrirhugaðrar skráningar á Aðalmarkað Nasdaq Iceland en almennt útboð á hlutabréfum félagsins hefst klukkan tíu í fyrramálið, þriðjudaginn 14. maí og lýkur á miðvikudaginn, 22. maí, klukkan 16. Viðskipti innlent 13.5.2024 18:18
Skúli Hrafn kemur nýr inn í stjórn Eyris Invest fyrir LSR Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, einn stærsti hluthafi Eyris Invest, hefur ákveðið að tilnefna einn af sjóðstjórum sínum í stjórn fjárfestingafélagsins. Eyrir er langsamlega stærsti hluthafinn í Marel með um fjórðungshlut og hefur veitt óafturkallanlegt samþykki sitt um að samþykkja yfirtökutilboð sem JBT áformar að leggja formlega fram síðar í þessum mánuði. Innherji 13.5.2024 14:26
Verðmetur Síldarvinnsluna yfir markaðsvirði í fyrsta skipti í 30 mánuði Í fyrsta skipti í þrjátíu mánuði er verðmatsgengi hlutabréfagreinanda fyrir ofan markaðsgengi Síldarvinnslunnar. „Hvort það endurspegli stöðuna á markaðnum eða hvort Jakobsson Capital sé mun bjartsýnna á slorið en markaðurinn er erfitt að segja. Óvissan er mikil en sveiflur markaðarins eru oft eins og sveiflur í loðnugöngum,“ segir í nýju verðmati en gert ráð fyrir því að rekstrarhagnaður útgerðarinnar verði orðinn hærri 2026 en hann var „metárið 2023.“ Innherji 13.5.2024 12:43
Afkoma Marels undir væntingum en jákvæðari tónn meðal viðskiptavina Afkoma Marels var undir væntingum greinenda á fyrsta ársfjórðungi. Forstjóri Marels sagði á afkomufundi að merkja megi jákvæðari tón á meðal viðskiptavina og að pantanir muni aukast á seinni hluta ársins samhliða bættum markaðsaðstæðum. Marel lækkaði um fjögur prósent í dag. Innherji 8.5.2024 17:45
Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, segir rekstrarafkomu félagsins ekki ásættanlega. Hins vegar sé gert ráð fyrir umtalsverðum rekstrarbata á síðari hluta ársins og á því næsta, eftir því sem skipulagsbreytingar nái fram að ganga. Viðskipti innlent 7.5.2024 17:47
Akta: Frumvarp ráðherra samkeppnishamlandi fyrir minni sjóðastýringar Framkvæmdastjóri Akta segir mikilvægt að jafnræðis sé gætt á meðal rekstrarfélaga verðbréfasjóða þegar kemur að nýjum lögum um aukið frelsi varðandi viðbótarlífeyrissparnað. Atriði í frumvarpinu séu samkeppnishamlandi fyrir minni fyrirtæki á markaðnum og gangi gegn hagsmunum þeirra sem eigi viðbótarlífeyrissparnað. Innherji 7.5.2024 12:34
Forstjóri: Kvika kemst vonandi nálægt því að ná markmiði um arðsemi í ár Kvika banki kemst vonandi nálægt því að ná markmiði sínu um arðsemi á árinu. „Við erum ánægð með góðan viðsnúning í bankarekstri,“ sagði Ármann Þorvaldsson bankastjóri. Stefnt er á að hleypa af stokkunum 3,5 til fimm milljarða króna framtakssjóði sem fjárfestir í Bretlandi. Innherji 3.5.2024 15:52
Óvenju hátt skatthlutfall Arion vegna framvirkra samninga Yfir lengra tímabil hafa framvirkir samningar sem Arion banki hefur veitt viðskiptavinum leitt til lægra virks skatthlutfalls, upplýsti bankastjóri. Hagnaður af slíkum samningum urðu til þess að skatthlutfallið var óvenju hátt á fyrsta ársfjórðungi sem kom greinendum á óvart. Hann gerir ráð fyrir því að þróunin verði með öðrum hætti á yfirstandi ársfjórðungi. Innherji 2.5.2024 16:34
Hlutabréfaverð flugfélaganna fellur og smærri fjárfestar færa sig í Alvotech Hlutabréfaverð íslensku flugfélaganna Icelandair og Play hefur fallið um næstum 50 til rúmlega 60 prósent á þremur mánuðum. Heildarvísitalan hefur á sama tíma lækkað um sjö prósent. Hlutabréfagreinandi segir að líklega hafi smærri fjárfestar og einstaklingar fært fjárfestingar sínar úr Icelandair í Alvotech. Það eru gerðar minni væntingar en áður til flugrekstrar samhliða minni eftirspurn eftir ferðum til Íslands. Innherji 30.4.2024 18:08
Hagnaður stóru sjóðastýringarfélaganna minnkaði eftir erfitt ár á mörkuðum Samanlagður hagnaður fjögurra stærstu sjóðastýringarfélaga landsins minnkaði um þrettán prósent á síðasta ári sem einkenndist af krefjandi aðstæðum á flestum eignamörkuðum fyrir fjárfesta. Afkoma Kviku eignastýringar, sem er í eigu samnefnds banka, dróst mest saman, eða um liðlega helming á milli ára. Innherji 30.4.2024 11:27
Metur Sýn 40 prósent yfir markaðsvirði Mikið aðhald hefur einkennt reksturinn hjá Sýn undanfarið og er það auðséð á ársuppgjöri, segir í verðmati sem lækkaði um nærri tólf prósent. Það er þó umtalsvert yfir markaðsverði. Innherji 26.4.2024 16:33
Heilbrigðistryggingafélag tekur lyf Alvotech upp á sína arma Bandaríska heilbrigðistryggingafélagið Cigna hyggst bjóða upp á líftæknilyfjahliðstæður af gigtarlyfinu Humira án þess að viðskiptavinir þurfi að greiða sérstaklega fyrir lyfið. Alvotech, sem er býður upp á slíkt lyf, hefur hækkað um 3,7 prósent það sem af er degi. Innherji 26.4.2024 12:13
Farsímatekjur undir væntingum Reiknað er með því að EBIT afkoma Sýnar á fyrsta ársfjórðungi verði umtalsvert minni en samanborið við sama tímabil í fyrra eða sem nemur rúmum 308 milljónum króna. Þetta kemur fram í afkomuviðvörun til Kauphallar. Áætluð EBIT afkoma verður um 120 milljónir króna en var 428 á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 24.4.2024 17:08
Vanskil fyrirtækja „ekki til marks um almenna breytingu“ hjá viðskiptavinum Íslandsbanki hefur ekki fundið fyrir mikilli aukningu í vanskilum hjá fyrirtækjum á undanförnum mánuðum, hvorki lengri né skemmri tíma vanskilum, segir fjármálastjóri Íslandsbanka. Heildarvanskil hjá fyrirtækjum í viðskiptum við Landsbankans hafa lítið eitt aukist frá áramótum en breytingin er „óveruleg og er ekki til marks um almenna breytingu hjá okkar viðskiptavinum.“ Innherji 23.4.2024 18:01
Skráning Oculis á Aðalmarkað má rekja til áhuga frá fjárfestum Skráning augnlyfjaþróunarfélagsins Oculis í Kauphöll Íslands er viðbragð við áhuga frá innlendum fjárfestum og byggð á óskum hluthafa, segir framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu. Mögulega mun fyrirtækið byrja að afla tekna árið 2026. Hann segir að það sé unnið að því að auka veltu með hlutabréfin á Nasdaq. Hún hafi verið að aukast og við það verði verðmyndun vonandi betri en markaðurinn ráði verðinu þegar öllu sé á botninn hvolft. Innherji 23.4.2024 14:24
Oculis komið á markað Viðskipti með verðbréf líftæknifyrirtækisins Oculis Holding AG eru hafin í Kauphöllinni. Félagið var áður skráð á markað í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 23.4.2024 10:03
Lífeyrissjóðir verða ekki hlutlausir fjárfestar, segir formaður Gildis Haft hefur verið á orði að lífeyrissjóðir eigi að láta einkafjárfestum eftir að leiða þau fyrirtæki sem fjárfest er í. Stjórnarformaður Gildis segir að í ljósi þess hve umsvifamiklir lífeyrissjóðir séu á hlutabréfamarkaði hérlendis muni þeir gegna veigameira hlutverki en að vera hlutlaus fjárfestir. Innherji 22.4.2024 19:18