Segja lýðheilsumál að áhugaleikfélögin haldi velli Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 22. maí 2022 11:31 Lilja Guðmundsdóttir og Viktor Ingi Jónsson sjá um hlaðvarpið Samlestur. Aðsend Hlaðvarpið Samlestur - leikhúsvarp fór af stað nú á dögunum og er um að ræða skemmtiþátt sem í leiðinni veitir öllum áhugaleikfélögum verðskuldaða athygli. Þau Lilja Guðmundsdóttir og Viktor Ingi Jónsson standa fyrir framtakinu en blaðamaður tók á þeim púlsinn. „
Aðal tilgangurinn er að vekja landann á tilurð áhugaleikfélaga og veita þekkingu á starfsemi þess svo allir geti fundið sína leið. Í þáttunum fáum við til okkar hina ýmsu gesti, þá bæði fólk sem er á fullu í áhugaleiklistinni og þekktu fólki sem á rætur sínar að rekja í áhugaleikfélögin,“ segja Lilja og Viktor. View this post on Instagram A post shared by Samlestur Leikhúsvarp (@samlestur) Mikilvægur hluti af samfélaginu Tilurð hlaðvarpsins kom út frá því að áhugaleikfélög eiga erfitt uppdráttar um þessar mundir. „Við erum að heyra að áhugaleikfélögin séu að berjast hvarvetna fyrir tilverurétti sínum. Sum félagana eru þegar húsnæðislaus, til dæmis Leikfélag Hafnarfjarðar, önnur fá engan húsnæðisstyrk frá bæjarfélagi sínu, samanber Leikfélag Kópavogs, Hugleikur og fleiri og önnur eru að missa húsnæði sitt, til dæmis Leikfélag Mosfellsbæjar. Sum þessara félaga hafa verið starfrækt hátt í 100 ár og verið mikilvægur hluti af samfélagi bæði sveitarfélaga og landans.“ View this post on Instagram A post shared by Samlestur Leikhúsvarp (@samlestur) Viðmælendur lýst þessu sem lífsbjörg Lilja og Viktor segja engum blöðum um það að fletta að áhugaleikhúsin hafi uppbyggileg og mikilvæg áhrif á líðan fólks. „Margir af þeim sem við höfum þegar tekið viðtöl við hafa lýst þessu sem lífsbjörg. Margir hafa kljást við þunglyndi, kvíðaröskun og ýmis konar geðræna kvilla, en standa fastir á því að það hafi verið þeim lífsbjörg að fá að koma inn í þessi mikilvægu félög. „Þetta er lýðheilsumál“ sagði einn gesturinn okkar, þar sem jú mörg okkar eiga enga samleið í íþróttum eða íþróttatengdu félagsstarfi.“ View this post on Instagram A post shared by Samlestur Leikhúsvarp (@samlestur) Sporna við þekkingarskorti Þau segja mikilvægt að áhugaleikfélögin fái að taka rými. „Þetta starf áhugaleikfélaga á að eiga sinn stað hjá sveitarstjórnum og sveitarfélögum. Þetta skiptir sköpum fyrir öll svið leiklistarinnar, þar sem atvinnuleikurum, atvinnuleikstjórum, atvinnutónlistarfólki og atvinnutæknifólki er veitt vinna við þetta líka. Tilvera þessa áhugaleikfélaga ræðst á því að við spornum við þeim þekkingarskorti sem virðist einkenna þetta svið. Og ætlum við að gera það með þessu hlaðvarpi.“ Leikhúsvarpið fór af stað 18. maí síðastliðinn.Aðsend Gróska af sköpun Í einum af fyrstu þáttum hlaðvarpsins spjölluðu þau við stjórnarmenn Leikfélags Keflavíkur, sem eru höfundar verksins Fyrsti Kossinn, frumsamins leikrits með tónlist eftir Rúnar Júlíusson. „Þetta verk var valið eitt af áhugaverðustu leiksýningum áhugaleikfélaga af nefnd Þjóðleikhússins sem gert er á hverju ári. Sem sýnir hversu mikil gróska af sköpun getur átt sér stað á stöðum eins og í Keflavík,“ segja þau að lokum. Tveir þættir eru nú þegar komnir út og allir þættir Samlesturs verða aðgengilegir á pardus.is/samlestur.
Leikhús Menning Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið Myndasyrpa úr Bakgarðshlaupinu Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Krakkatían: Dýrin, heimsálfur og teiknimyndir Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira