Innlent

Segir völdum rænt um stundarsakir

Sveinn Arnarson skrifar
Alþingi kemur saman eftir jólafrí.
Steingrímur J. Sigfússon
Alþingi kemur saman eftir jólafrí. Steingrímur J. Sigfússon
„Það er augljóst að það er búið að ræna völdum hér um stundarsakir,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, og á þar við að Miðflokksmenn stunda nú það sem flestir vilja kalla grímulaust málþóf um þriðja orkupakkann. Hljóðið í öðrum þingmönnum er þungt þessa dagana og fer þolinmæði þverrandi með hverjum deginum sem líður.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, er ósammála því að Miðflokkurinn hafi tekið völdin á þingi.

„Það er hálf einkennileg túlkun þar sem forseti sjálfur er með dagskrárvaldið. Við höfum margoft boðið honum að taka önnur mál fram fyrir og ljúka þeim. Við erum öll af vilja gerð til að láta þingstörfin ganga vel,“ segir Sigmundur.

„Hins vegar hefur umræðan verið góð og nýjar upplýsingar að koma á yfirborðið. Þær upplýsingar kalla á spurningar sem við viljum fá svör við. Því teljum við að það myndi flýta fyrir málinu ef stuðningsmenn tillögunnar gætu talað fyrir henni og veitt okkur þau svör sem við teljum okkur þurfa.“

Átta af níu nefndarmönnum í utanríkismálanefnd lögðu það til eftir meðferð í nefndinni, að málið yrði samþykkt. Aðeins Sigmundur Davíð vildi hafna tillögunni.

„Við búum við ákveðnar leikreglur hér í þinginu. Þingviljinn birtist í atkvæðagreiðslu og það er miður ef þingmenn vilja ekki láta þingviljann ráða för,“ segir Steingrímur. „Ég hef áður beðið þingflokk Miðflokksins að láta staðar numið og vonast til að sú verði raunin. Þetta er algjört einsdæmi, að einn þingflokkur skuli halda uppi svona málþófi.“

Fréttablaðið hefur rætt við þingmenn sem segja að markmið Sigmundar sé að forseti eða þingmenn stöðvi umræðurnar á grundvelli þingskaparlaga. Hins vegar sé enginn tilbúinn til að láta það eftir honum. Menn telji það vera áætlun Sigmundar að þannig komi hann út sem sigurvegari í þessari störukeppni. Menn bíði hins vegar eftir því að Miðflokksmenn brotni og hætti málþófinu. Á meðan þessi pattstaða er uppi er þingið óstarfhæft að öðru leyti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×