Innlent

Ekki ákjósanlegt ferðaveður í dag

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það mun kólna á Þorláksmessu að sögn Veðurstofunnar.
Það mun kólna á Þorláksmessu að sögn Veðurstofunnar. Vísir/GVA
Allhvöss suðvestanátt verður víða um land í dag og á morgun með skúrum í fyrstu en síðar slydduél eða él á suður- og vesturhelmingi landsins. Þó verður léttskýjað á norðausturfjórðungnum að sögn Veðurstofunnar.

Í kröftugustu éljunum síðdegis og á morgun má búast við lélegu skyggni og því ekki ákjósanlegt ferðaveður.

Hiti verður um og yfir frostmarki, en kólnar niður fyrir frostmark norðantil á morgun.

Sunnanátt á föstudag og talsverð rigning sunnanlands og hlýnar talsvert en á Þorláksmessu snýst í norðaustanátt og kólnar aftur með éljum norðan- og austanlands en úrkomulítið syðra.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Suðvestanátt, víða 13-18 m/s og éljagangur, en þurrt og bjart norðaustan- og austanlands. Hiti kringum frostmark.

Á fimmtudag:


Allhvöss suðvestanátt og éljagangur framan af degi, en dregur úr vindi og éljum eftir hádegi. Léttskýjað austantil á landinu. Frost 0 til 5 stig.

Á föstudag:

Allhvöss suðaustanátt og rigning eða slydda, en talsverð rigning sunnanlands. Hiti 1 til 7 stig, hlýjast syðst.

Á laugardag (Þorláksmessa):

Norðaustlæg eða breytileg átt og líkur á snjókomu eða éljum norðantil en rigning eða slydda syðra. Vægt frost norðanlands, en hiti nálægt frostmarki með sunnantil.

Á sunnudag (aðfangadagur jóla):

Ákveðin norðaustanátt með éljum, einkum norðan- og austanlands, en úrkomuminna sunnan- og vestantil. Frost 1 til 7 stig.

Á mánudag (jóladagur):

Útlit fyrir norðaustan átt með éljagangi norðan- og austantil en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Frost 3 til 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×