Innlent

Vegabréfsáritanir óþarfar vegna HM í Rússlandi

Þórdís Valsdóttir skrifar
Utanríkisráðherra fundaði í dag með Antoni Vasiliev, sendiherra Rússlands. Íslendingar sem leggja leið sína til Rússlands á næsta ári munu ekki þurfa hefðbundna vegabréfsáritun.
Utanríkisráðherra fundaði í dag með Antoni Vasiliev, sendiherra Rússlands. Íslendingar sem leggja leið sína til Rússlands á næsta ári munu ekki þurfa hefðbundna vegabréfsáritun.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fundaði fyrr í dag með Antoni Vasiliev, sendiherra Rússlands. Þeir ræddu undirbúning HM í knattspyrnu sem fer fram í Rússlandi á næsta ári.

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tryggði sér farseðil til Rússlands í gær eftir 2-0 sigur á móti Kósóvó. Búist er við því að fjöldi Íslendinga muni leggja leið sína til Rússlands til að styðja landsliðið í keppninni.

Á fundi Guðlaugs Þórs og Vasiliev kom fram að rússnesk stjórnvöld munu bjóða stuðningsmönnum sem ferðast til Rússlands sérstakt stuðningsmannaskírteini, eða „Fan ID“. 

Því er ekki þörf fyrir stuðningsmenn að fá vegabréfsáritun til að ferðast til Rússlands. Ákveðin skilyrði gilda þó um stuðningsmannaskírteinin.

Þeir stuðningsmenn sem hyggjast leggja leið sína til Rússlands næsta sumar þurfa að skrá sig á þartilgerða heimasíðu, www.fan-id.ru. Einnig er smáforrit sem ber heitið „Welcome 2018“ fyrir þá sem ferðast til Rússlands vegna leikjanna.

Utanríkisráðuneytið hvetur þá sem hyggjast ferðast til Rússlands að skoða reglurnar sem gilda fyrir stuðningsmannapassana gaumgæfilega og leita til sendiráðs Rússlands ef spurningar vakna.

Rússar munu taka vel á móti Íslendingum

Guðlaugur Þór segir að Rússar muni leggja mikið upp úr því að undirbúa kepnnina vel og að þeir hafi lofað Íslendingum allri aðstoð sem þörf er á. 

„Við munum einnig senda starfsfólk aukalega til Rússlands til að styðja við bakið á sendiráði okkar, því ljóst er að mikið mun mæða á því í aðdraganda keppninnar og meðan á henni stendur,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu.

Þann 1. desember næstkomandi mun koma í ljós hvar Ísland mun leika í keppninni en keppt verður á tólf leikvöngum í ellefu rússneskum borgum.

Engin bein áætlunarflug eru á milli Íslands og Rússlands en þó er Icelandair í samstarfi við rússneska flugfélagið Aeroflot. Utanríkisráðuneytið hefur verið í viðræðum við rússnesk stjórnvöld að undanförnu um að endurskoða loftferðasamning ríkjanna til að greiða fyrir mögulegum flugsamgöngum á milli landanna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×