Innlent

Vara við miklu vatnsveðri

Birgir Olgeirsson skrifar
Veðurstofa Íslands varar við miklu vatnsveðri á mið-Norðurlandi og á Ströndum fram á morgundag með tilheyrandi vatnavöxtum og hættu á skriðuföllum.

Er von á 963 millibara lægð til landsins á morgun en Veðurstofan segir flesta landsmenn sleppa nokkuð vel frá henni. Vestfirðir munu þó helst fá hvassviðri, en aðrir landshluta sleppa með strekking í mesta lagi.

Lægðinni fylgir rigning og eins og vera ber í norðanátt verður hún mest á norðanverðu landinu. Það mun þó einnig rigna sunnanlands þegar myndarlegt úrkomusvæði lægðarinnar dreifir úr sér suður yfir heiðar. Þó áttin sé norðlæg, kólnar ekki á landinu, enda er um að ræða milt loft sem ferðast hefur sunnan að með lægðinni.

Á morgun grynnist lægðin, en nær þó að viðhalda allhvössum vindi á Vestfjörðum og rigningu norðanlands. Sunnan megin á landinu verður þokkalegt veður eða fremur hægur vindur og þurrt fram eftir degi, en þar hvessir annað kvöld og fer að rigna þegar skil næstu lægðar koma inn á landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×