Fótbolti

Sérstakt FanZone í Laugardalnum

Jón Hjörtur Emilsson skrifar
Von er á góðum stuðningi í Laugardalnum í kvöld.
Von er á góðum stuðningi í Laugardalnum í kvöld. Vísir/Vilhelm
Knattspyrnusambandið verður með sérstakt Fanzone fyrir leik í dag. Á staðnum verður veitingasala, hoppukastalar og andlitsmálning.  Leikurinn verður einnig sýndur á stórum skjá fyrir utan Laugardalsvöll fyrir þá sem náðu ekki að tryggja sér miða. Svæðið opnar 2 klukkustundum fyrir leik.

Mikil eftirvænting er eftir leiknum en með sigri í dag jöfnum við Króata að stigum og komum okkur í 1. sæti við hlið þeirra. Fyrir leik eru bæði Tyrkland og Úkraína tveimur stigum á eftir Íslandi og er því um gríðarlega mikilvægan leik að ræða. Eins gott að styðja vel við bakið á okkar mönnum í kvöld.

Leikurinn hefst kl. 18:45 en fólk er hvatt til að mæta tímanlega á völlinn. Á vef KSÍ má lesa meira um svæðið og einnig sjá mynd af svæðinu en vegna þess verður bílastæðum fyrir framan innganginn lokað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×