Fótbolti

Bein útsending: Veðjað á rangan hest

Tómas Þór Þórðarson skrifar
vísir
Lagadeild Háskólans í Reykjavík, í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Knattspyrnusamband Íslands stendur fyrir málstofu um hættuna af hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum og nauðsynleg viðbrögð.

Málstofan heitir „Veðjað á rangan hest“ og þar verður meðal annars fjallað um tengsl við skipulagða glæpastarfsemi, skuldbindingar Íslands í baráttunni gegn hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum og hagræðing úrslita í íslenskri knattspyrnu.

Málstofan er haldin í Háskólanum í Reykjavík en hún fer fram á milli 12 og 14 í dag. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Auk fyrirlesara munu Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ og Þorvaldur Ingimundarson, heilindafulltrúi KSÍ, taka þátt í pallborðsumræðum þar sem þátttakendur eru frummælendur.

Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér að neðan.

Dagskrá:

Setning

Arnar Þór Jónsson, lektor við lagadeild HR

Skipulögð glæpastarfsemi og hagræðing úrslita

Sveinn Helgason, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu

Peningaspil og hagræðing úrslita í íslenskri knattspyrnu

Hafrún Kristjánsdóttir, lektor í HR og Daníel Þór Ólason, prófessor við HÍ

Veðjað á hliðarlínunni

Arnar Már Björgvinsson, lögfræðingur og knattspyrnumaður

Skuldbindingar Íslands í baráttunni gegn hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum

Óskar Þór Ármannsson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og formaður starfshóps um tillögur vegna hagræðingar úrslita í íþróttakeppnum

Pallborðsumræður

Þátttakendur eru frummælendur, Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ og Þorvaldur Ingimundarson, heilindafulltrúi KSÍ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×