Innlent

Fjármálaráðherra segir Pírata berja sér á brjóst

Heimir Már Pétursson skrifar
Þingmenn stjórnarflokkanna ásamt þingmönnum Framsóknarflokksins komu í veg fyrir að frumvarp Pírata um kjararáð yrði tekið á dagskrá Alþings í dag. Frumvarpið miðar að því að kjararáð endurskoði úrskurð sinn um laun æðstu embættismanna.

Aðilar vinnumarkaðarins hafa fram til mánaðamóta til að ljúka endurskoðun á forsendum um eitt hundrað kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. En Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins segja launahækkanir kjararáðs til þingmanna og annarra æðstu embættismanna vera langt umfram launahækkanir á almennum markaði og því í mótsögn við forsendur kjarasamninga.

Frumvarp þingmanna Pírata gerir ráð fyrir að kjararáð úrskurði að nýju um laun æðstu embættismanna og taki þá mið af almennri launaþróun. Jón Þór Ólafsson mælti fyrir tillögu Pírata að dagskrárbreytingu á Alþingi í dag svo taka mætti frumvarp þeirra fyrir.

„Málið er í rauninni einfalt. Það felst í rauninni bara í því að Alþingi fyrirskipi kjararáði að láta launaþróun ráðamanna fylgja launaþróun almennings. Þetta frumvarp er tækifæri fyrir Alþingi að gera sitt í átt til sátta á vinnumarkaði,“ sagði Jón Þór.

Sigurður Ingi Jóhansson, formaður Framsóknarflokksins.Vísir/Ernir
Þingflokkar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar greiddu atkvæði með dagskrártillögu Pírata enda væri tími til endurskoðunar kjarasaminga naumur. En þingmenn stjórnarflokkanna og Framsóknarflokksins greiddu atkvæði á móti.

„Ég verð að gera athugasemdir við það að Píratar komi með dagskrártillögu að þessu tagi hér í lok dags í gær. Án þess að hafa nýtt tækifæri á fundum þingflokksformanna, forsætisnefndar eða annars staðar til að leggja áherslu á að þetta mál komist á dagskrá. Það var ekki gert,“ sagði Birgir Ármannsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins sagði formenn allra flokka hafa komist að þeirri niðurstöðu í desember að Alþingi hefði ekki forsendur til að breyta úrskurðum kjararáðs. En forsætisnefnd hefði hins vegar lækkað aukagreiðslur til þingmanna um 150 þúsund krónur á mánuði.

„Og tel eðlilegt að að það komi í ljós nú þegar hvaða afstöðu við höfum til þessa máls með því að taka málið annað hvort á dagskrá eða vísa því frá. Og við framsóknarmenn munum leggjast gegn því að málið fari á dagskrá vegna þess að við höfum ekki skipt um skoðun,“ sagði Sigurður Ingi.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra tók undir með formanni Framsóknarflokksins varðandi fyrri afgreiðslu formanna á málinu í desember, sem leitt hafi til lækkunar greiðslna til þingmanna.

„Og við sjáum engar forsendur til þess að menn séu að taka þetta mál upp núna „með skyndingu“ til að reyna að berja sér á brjóst,“ sagði Benedikt Jóhannesson.


Tengdar fréttir

Fulltrúar launþega þungir á brún en þöglir um stöðuna

Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands vinna nú hratt að því að meta hvort forsendur kjarasamninga séu brostnar. Forsendunefnd hittist á þriðjudag og samninganefnd ASÍ hefur verið virkjuð. Nokkrar launþegastéttir urðu fyrir sk

Forsendur samninga brostnar að mati ASÍ

Ríkissáttasemjari telur að fram undan geti verið erfitt ár. Forseti ASÍ segir forsendur kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins brostnar. Sammála um að ákvörðun um launahækkun þingmanna og ráðherra hafi verið olía á eldinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×