Innlent

"Öryrkjar hafa ekki nóg til þess að eiga í sig og á og búa bara við fátækt"

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Formaður Öryrkjabandalagsins segir félagsmálaráðherra hafa farið þvert gegn vilja almannatrygginganefndar og stjórnarliðum með breytingum á lögum um  almannatryggingar sem samþykktar voru á Alþingi í þinglok. Þeir sem lifa þurfi á örorkulífeyri frá almannatryggingum líði óboðlega fátækt. 

Á aðalfundi Öryrkjabandalagsins sem haldinn var í dag voru samþykktar ályktanir um helstu baráttumál félagsins á komandi misserum. Í síðustu viku voru samþykkt lög um breytingar á almannatryggingakerfinu þar sem hlutur öryrkja þótti heldur rýr að mati bandalagsins.

Öryrkjabandalagið hefur skipt baráttumálum sínum niður í fimm málaflokka og er þar efst á blaði lífeyrismál örorkulífeyrisþega. Bandalagið vill við einnig lögfesta NPA og bæta enn frekar aðgengi fatlaðra að samfélaginu. Styrkja menntakerfið og svo sömuleiðis heilbrigðiskerfið þar sem lögð er áhersla á heilbrigðisþjónusta verði gjaldfrjáls.

„Staða örorkulífeyrisþega er þannig í dag að þeir sem þurfa að lifa á þessum örorkulífeyri frá almannatryggingum, þeir hafa alls ekki nóg til þess að eiga í sig og á og búa bara við fátækt,“ segir Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalagsins. 

Á aðalfundinum í dag voru samþykktar ályktanir sem jafnframt eru áskoranir til nýrrar ríkisstjórnar sem tekur við völdum eftir kosningar í lok mánaðarins.

„Við tölum ekki síður til kjósenda og hvetjum þá til þess að horfa til mannréttinda og að þeir kjósi betra samfélag fyrir alla,“ segir Ellen.

Ellen segir að sú breyting sem gerð hafi verið á lögum um almannatryggingakerfið og voru samþykkt fyrir þinglok hafi staða öryrkja lítið sem ekkert breyst. Fulltrúi frá Öryrkjabandalaginu hafi setið í almannatrygginganefnd í þrjú ár þar sem hann hafi lagt áherslu á mál bandalagsins. Niðurstaða nefndarinnar í vinnu við frumvarpið hafi svo verið önnur en bandalagið batt vonir um. Ráðherra hafi svo tekið ákvörðun um að fara allt aðra leið en nefndin og stjórnarliðar vildu fara þar sem var skýr samstaða um að svokölluð "sérstök framfærslu uppbót", sem skerðir atvinnutekjur krónu á móti krónu, yrði látin víkja

„Ráðherra fór hins vegar skýrt og klárt þá leið að festa þessa sérstöku framfærslu uppbót enn frekar í sessi,“ segir Ellen. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×