Innlent

Sturla býður sig fram til þings

Atli Ísleifsson skrifar
Sturla Jónsson frambjóðandi.
Sturla Jónsson frambjóðandi. visir/anton brink
Sturla Jónsson hyggst bjóða sig fram til Alþingis undir merkjum stjórnmálaflokksins Dögunar. Sturla greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni þar sem hann segist bjóða sig fram fyrir fólkið í landinu.

Sturla bauð sig síðast fram til embættis forseta Íslands fyrr í sumar þar sem hann hlaut 3,5 prósent atkvæða.

Hann bauð sig fram í Alþing­is­kosn­ing­unum árið 2013 með fram­boð­inu Sturla Jóns­son, þar sem listi hans bauð einungis fram í Reykjavíkurkjördæmi suður. Sturla náði ekki kjöri í kosningunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×