Fótbolti

Sara Björk meiddist á æfingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir á æfingu með landsliðinu.
Sara Björk Gunnarsdóttir á æfingu með landsliðinu. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór
Meiðslamartröð sænska liðsins FC Rosengård ætlar engan enda að taka og nýjasta fórnarlambið er íslenska landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir.

Sara Björk Gunnarsdóttir tognaði aftan í læri á æfingu liðsins og í versta falli er hún með rifinn vöðva. Þetta kemur fram á sydsvenskan.se.

Áður höfðu meiðst markvörðurinn Erin McLeod, varnarmennirnir Amanda Ilestedt, Nina Frausing Pedersen og Emma Berglund, miðjumaðurinn Sofie Junge Pedersen og framherjinn Gaëlle Enganamouit meiðst hjá liðinu en sú síðastnefnda sleit krossband.

Sara Björk varð fyrir sömu meiðslum og Emma Berglund.  „Við verðum að fara skoða hvernig við æfum. Við hljótum að vera gera eitthvað rangt. Vöðvatognanir koma oft til vegna þreyttra vöðva. Þetta er engin tilviljun," sagði Jack Majgaard Jensen, þjálfari FC Rosengård við Sydsvenskan.

Sara Björk gæti verið frá í nokkurn tíma og Skotaleikurinn er möguleika í hættu ef meiðslin eru alvarleg.

Ísland og Skotland berjast um sigur í riðlinum og beint sæti á EM 2017 en fyrsti innbyrðisleikur þjóðanna er í Skotlandi 3. júní næstkomandi eða eftir rúman mánuð.  

Sara Björk verður vonandi búin að ná sér en hún er algjör lykilmaður á miðju íslenska liðsins sem hefur unnið fyrstu fjóra leiki sína í undankeppninni.

Sara verður í það minnst ekki með  Rosengård-liðinu annað kvöld þegar liðið mætir Vittsjö í sænsku bikarkeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×