Innlent

Mynduðu stjórn um mikilvæg málefni en vita ekki hver þau eru

Sveinn Arnarsson skrifar
Helgi Hjörvar
Helgi Hjörvar
Hægt mjakast í viðræðum stjórnar og stjórnarandstöðu á þingi. Stjórnarandstaðan hefur ekki fengið svör við því hvaða mál þurfi að hjálpa ríkisstjórninni með í gegnum þingið fyrir kosningar og hefur ekki verið svarað um nákvæma dagsetningu alþingiskosninga í haust.

Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir það skjóta skökku við að geta ekki svarað því til hvaða mál þurfi að aðstoða stjórnina með í gegnum þingið.

„Þeir gátu hvorki svarað um dagsetningu kosninga né hvaða mál þyrfti að hjálpa þeim með. Maður skyldi ætla að að þeir gætu sagt okkur hvaða mikilvægu mál þetta séu. Ég trúi ekki öðru en að búið verði að svara þessari spurningu fyrir þingfund [í dag]. Það er erfitt að skipuleggja þingstörf ef þeir sem eiga að stjórna vita hvorki hvenær eigi að ljúka þingi eða hvað eigi að taka fyrir,“ segir Helgi. „Við gerum lágmarkskröfu um ákveðinn ramma um þingstörfin, sérstaklega eftir það sem á undan hefur gengið.“

Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson, segir nú unnið að því að sigta út þau mál sem þurfi að verða að lögum í vor og í sumar áður en gengið er til kosninga. „Á meðan sú vinna er í gangi er ekki hægt að svara fyrirspurn minnihlutans um kosningar eða fjölda mála. Næstu dagar fara í það að skoða þessi mál og vinna þau í samvinnu flokkanna í ríkisstjórn og í samtölum við stjórnarandstöðuna,“ segir Guðlaugur Þór.

Ríkisstjórnin kom saman í gær til fyrsta fundar og voru þar þrjú mál rædd. Þar ræddi Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, Panamaskjölin og viðbrögð stjórnvalda við þeim. Bjarni var sjálfur einn þeirra sem var í umræddum skjölum, sem og innanríkisráðherra, Ólöf Nordal.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 12. apríl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×