Innlent

Tvö þingmannamál Páls Vals samþykkt á þingi

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Þingmannamál ná sjaldan að fara alla leið á Alþingi en Páll Valur fékk tvö mál samþykkt í dag; eina þingsályktun og eina lagabreytingu.
Þingmannamál ná sjaldan að fara alla leið á Alþingi en Páll Valur fékk tvö mál samþykkt í dag; eina þingsályktun og eina lagabreytingu. Mynd/Björt framtíð
Alþingi samþykkti tvö þingmannamál Páls Vals Björnssonar, þingmanns Bjartrar framtíðar, í dag. Sjaldgæft er að þingmannamál nái svo langt að verða samþykkt sem lög en málin tvö sem hér um ræðir voru samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

Samkvæmt yfirliti á vef Alþingis hefur aðeins eitt þingmannafrumvarp verið samþykkt og frágengið á yfirstandandi þingi á meðan 49 þingmannamál bíða fyrstu umræðu og 29 önnur sitja í nefnd. Þegar horft er til þingsályktana sést að þrjár þingmannatillögur hafa verið samþykktar og frágengnar en 58 bíða fyrstu umræðu og 32 sitja í nefnd.

Annað málið sem Páll Valur fékk samþykkt felur í sér að leggja rétt foreldra sem eiga andvana barn eftir 22 vikna með­göngu að jöfnu við rétt foreldra sem missa barn stuttu eftir fæðingu á meðan á fæðingarorlofi stendur, samkvæmt greinargerð sem fylgdi frumvarpinu þegar það var lagt fram. 

Auk Páls Vals voru þau Björt Ólafsdóttir, Brynhildur Pétursdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Óttarr Proppé, Róbert Marshall, allt þingmenn Bjartrar framtíðar, og þau Katrín Jakobsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, og Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, flutningsmenn frumvarpsins.

Hitt málið er álykt þar sem þingið felur innanríkisráðherra að beita sér fyrir því að 20. nóvember, dagurinn sem barnasáttmálinn var samþykktur, verði helgaður fræðslu um mannréttindi barna í skólum landsins á hverju ári. Á ráðherrann að vera í samráði við menntamálaráðherra um málið.

Auk Páls voru þau Valgerður Bjarnadóttir, þingkona Samfylkingar, Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokks, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkona Vinstri grænna, Elín Hirst, þingkona Sjálfstæðisflokks, og Birgitta Jónsdóttir, þingkona Pírata, flutningsmenn ályktunarinnar.

Að vera þingmaður er krefjandi starf og að vera þingmaður í minnihluta er jafnvel enn meira krefjandi. Án þess að ég sé...

Posted by Páll Valur Björnsson on Tuesday, March 15, 2016



Fleiri fréttir

Sjá meira


×