Innlent

Píratar vilja lög um helgidagafrið burt

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Helgi Hrafn Gunnarsson er fyrsti flutningarmaður frumvarpsins
Helgi Hrafn Gunnarsson er fyrsti flutningarmaður frumvarpsins vísir/vilhelm
Þingmenn Pírata, auk Guðmundar Steingrímssonar úr Bjartri framtíð, hafa lagt fram frumvarp þess efnis að lög um helgidagafrið verði felld úr gildi. Tilgangur laganna, sem frumvarpið mælir fyrir að falli brott, er að vernda helgihald og að tryggja frið, næði, hvíld og afþeyingu almennings á helgidögum þjóðkirkjunnar..

„Flutningsmenn sjá ekki ástæðu til að takmarka frelsi fólks með lögum þannig að það varði sektum að standa að t.d. bingó, happdrætti, dansleikjum eða öðrum samkomum á helgidögum þjóðkirkjunnar,” segir í greinargerð með frumvarpinu. Íslenskt samfélag hafi tekið miklum breytingum undanfarin á rog áratuga. Það megi til að mynda merkja á breyttri samsetningu íbúa hvað trúarbrögð og lífskoðanir varðar.

Það sé undarlegt að á meðan Ísland sé markaðsett sem áfangastaður ferðamanna yfir hátíðir þá séu helstu verslanir og þjónusta lokuð á þeim tíma. Með frumvarpinu er gerð sú krafa að það sé atvinnurekendum í sjálfsvald sett hvort þeir hafi opið á hátíðisdögum í samráði við starfsmenn og í samræmi við ákvæði kjarasamninga.

„Í ljósi fyrrnefndra breytinga á samfélaginu hvað varðar trúar- og lífsskoðanir fólks og ekki síður í ljósi stóraukins ferðamannastraums til landsins telja flutningsmenn lög um helgidagafrið vera úreltan lagabókstaf og að löngu sé orðið tímabært að nútímavæða fyrirkomulagið. Tilgangur laga um helgidagafrið er að tryggja að fólk sem vill stunda helgihald á sunnudögum og helgidögum fái frið til þess. Flutningsmenn telja að ástæðulaust sé að takmarka með lögum frelsi fólks á tilteknum dögum til þess eins að annað fólk fái þá frið til að stunda helgihald,“ segir í greinargerðinni.


Tengdar fréttir

Lögreglan minnir á bingóbann um páskana

Skemmtanir, svo sem dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða á öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að, eru bannaðar á ákveðnum tíma um bænadaga og páska. Hið sama gildir um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur spil fara fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem minnir á umrætt bann. Tekið skal fram að listsýningar, tónleikar, leiksýningar og kvikmyndasýningar eru undanþegnar banni um helgidagafrið á föstudaginn langa en slíkir viðburðir mega þó ekki hefjast fyrr en klukkan 15:00 umræddan dag. Miðvikud. 20. apríl - Opið til kl. 03:00 eða 05:30 skv. leyfi Fimmtud. 21. apríl Skírdagur - Opið til miðnættis Föstud. 22. apríl Föstudagurinn langi - Lokað en má opna á miðnætti og vera opið til kl. 03:00 eða 05:30 Laugard. 23. apríl - Opið til kl. 03:00 Sunnud. 24. apríl Páskadagur - Lokað en má opna á miðnætti og vera opið til kl. 03:00 eða 05:30 Mánud. 25. apríl Annar í páskum - Opið til kl. 01:00

Halda ólöglegt bingó á morgun

Félagið Vantrú stendur fyrir ólöglegu bingói á Austurvelli klukkan 13:00 á föstudeginum langa. Í tilkynningu frá Vantrú segir að allir séu velkomnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×