Fótbolti

Selfyssingar eiga besta vallarstjóra landsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórdís R. Hansen Smáradóttir með Ágústi Jenssyni, formanni Samtaka Íþrótta- og Golfvallastarfsmanna á Íslandi.
Þórdís R. Hansen Smáradóttir með Ágústi Jenssyni, formanni Samtaka Íþrótta- og Golfvallastarfsmanna á Íslandi. Mynd/KSÍ
Þórdís R. Hansen Smáradóttir, vallarstjóri á Selfossvelli, var á dögunum valin knattspyrnuvallarstjóri ársins á aðalfundi Samtaka Íþrótta- og Golfvallastarfsmanna á Íslandi.

Tryggvi Ölver Gunnarsson, vallarstjóri hjá Golfklúbbnum Oddi, fékk samskonar verðlaun í flokki golfvallastjóra. Knattspyrnusamband Íslands segir frá þessum verðlaunum inn á heimasíðu sinni.

Þórdís R. Hansen Smáradóttir endaði þar með þriggja ára einokun Kristins V. Jóhannssonar á þessum fjögurra ára gömlu verðlaunum en Kristinn var verðlaunaður fyrir árin 2012, 2013 og 2014 fyrir starf sitt sem vallarstjóri Laugardalsvallar.

Þórdís R. Hansen hefur unnið frábært starf á Selfossi síðustu ár en Selfossvöllurinn hefur verið einn allra besti völlur landsins undanfarin ár. Á því varð engin breyting síðasta sumar og er Þórdís því vel að þessum verðlaunum komin.

Tryggvi fær sín verðlaun fyrir Urriðavöll sem skartaði sínu fegursta síðasta sumar og á Tryggvi mikið hrós skilið fyrir sína vinnu.  Það er einstök upplifun að heimsækja Urriðavöll enda umhverfi vallarins stórglæsilegt sem og völlurinn sjálfur.

Samtök íslenskra golf- og íþróttavallastarfsmanna eru samtök sem stuðla að fagmennsku hjá félagsmönnum sínum og sér þeim fyrir sem bestum upplýsingum til að auðvelda þeim starf sitt á golf- og íþróttavöllum á Íslandi.

Á aðalfundi Samtaka Íþrótta- og Golfvallastarfsmanna á Íslandi gekk Einar Friðrik Brynjarsson úr stjórn en í hans stað kom inn Róbert Árni Halldórsson, vallarstjóri Golfklúbbs Grindavíkur.

Stjórn SÍGÍ fyrir starfsárið 2016 er því skipuð þeim, Ágúst Jenssyni, formanni, Jóhanni Gunnar Kristinssyni, Birki Már Birgisson, Birgi Jóhannssyni, Steindóri Ragnarssyni og Róberti Árna Halldórssyni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×