Messi með tvö mörk og tvær stoðsendingar í fyrsta leik ársins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2016 21:26 Neymar og Andrés Iniesta fagna Lionel Messi í kvöld. Vísir/Getty
Barcelona vann 4-1 heimasigur á nágrönnum sínum í Espanyol í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum spænska konungsbikarsins í fótbolta á Nývangi í kvöld. Barcelona-maðurinn Lionel Messi byrjar árið á fullu skriði en hann skoraði tvö mörk í kvöld og lagði hin tvö fyrir félaga sína, Gerard Piqué og Neymar. Seinni leikur liðanna fer síðan fram á heimavelli Espanyol í næstu viku. Barcelona er því í mjög góðum málum og ætti að eiga frekar auðvelt með að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum. Leikmenn Espanyol fengu samt draumabyrjun þegar Felipe Caicedo kom liðinu í 1-0 strax á 8. mínútu leiksins. Espanyol var þó bara yfir í fimm mínútur því Lionel Messi jafnaði á 13. mínútu eftir stoðsendingu frá Andrés Iniesta. Messi kom Barcelona síðan í 2-1 með marki beint úr aukaspyrnu á 44. mínútu leiksins. Gerard Piqué skoraði þriðja mark Barcelona eftir aðeins fimm mínútna leik í seinni hálfleiks. Fjórða markið kom síðan í uppbótartíma og það skoraði Neymar eftir stoðsendingu frá Lionel Messi.Lionel Messi skorar hér seinna markið sitt beint úr aukaspyrnu.Vísir/Getty
Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira