Innlent

Mæðgur fögnuðu báðar níu ára afmæli á óveðursdag: „Það eru ágætis líkur á þessu“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Tölfræðingurinn Sigrún Helga Lund og dóttir hennar fögnuðu báðar níu ára afmæli á einstökum óveðursdögum.
Tölfræðingurinn Sigrún Helga Lund og dóttir hennar fögnuðu báðar níu ára afmæli á einstökum óveðursdögum. Samsett
Hverjar eru líkurnar á því að mæðgur haldi upp á níu ára afmælisdaga sína á sömu dögum og einhver klikkuðustu óveður í manna minnum gengu yfir Ísland?

Töluvert meiri en maður myndi halda samkvæmt Sigrúnu Helgu Lund sem ætti að vita það, hún er jú með doktorsgráðu í tölfræði. Hún og dóttir hennar urðu báðar níu ára á einstökum óviðrisdögum.

Sigrún Helga hélt upp á níu ára afmæli sitt þann 3. febrúar 1991 þegar eitt versta óveður sem skollið hefur á Ísland reið yfir landið líkt og Vísir hefur rifjað upp. Svo skemmtilega vill til að dóttir Sigrúnar Helgu á níu ára afmæli í dag, deginum sem reiknað er með að versta óveður síðan hið fræga óveður frá 1991 muni skella á Íslandi.



Forsíða DV daginn eftir óveðrið 1991
„Það eru alveg ágætis líkur á að þetta gerist. Ég hef nú reyndar ekki pælt mikið í þessu en það má segja að þetta sé sambærilegt við að tvær manneskjur sem eigi afmæli á sama degi lendi saman í bekk,“ segir Sigrún Helga sem er stödd í Orlando í Bandaríkjunum á ráðstefnu og mun hún því missa af óviðrinu mikla í dag.

Hún missti þó ekki af storminum árið 1991 sem er henni enn í fersku minni.

„Við ætluðum að hafa pítsur í matinn sem var mjög nýmóðins á þeim tíma. Vandamálið var að það varð rafmagnslaust þannig að við sátum bara uppi með helling af deigi.“

En mætti einhver í afmælið?

„Það voru mjög hugrakkir foreldar sem sem löbbuðu með krakkana sína í afmælið. Við vorum helst í því að leika okkur með kertaljós og ég man hvað það var mikil hamingja þegar rafmagnið kom á.“

Dóttir Sigrúnar Helgu mun reyndar ekki feta í fótspor móður sinnar og halda upp á afmæli sitt í kvöld á meðan veðrið verður vitlaust. „Nei, hún ætlar bara að hafa það gott heima í kvöld og halda upp á afmælið seinna.“

Ekki óvitlaust enda er fólk eindregið beðið um að halda sig innandyra í kvöld á meðan veðrið verður sem verst en sjá má myndir af óveðrinu 1991 hér fyrir neðan.

Þessi bíll fór í flugferð í storminum.Vísir/GVA
Björgunarsveitamenn höfðu í nógu að snúast.Vísir/GVA
Þök rifnuðu af húsum.Vísir/GVA

Tengdar fréttir

Von á ofsaveðri sem kemur á áratuga fresti

Veðurstofa Íslands spáir ofsaveðri í dag. Á morgun er búist við góðu vetrarveðri. Slysavarnafélagið Landsbjörg biður fólk að vara erlenda ferðamenn við veðrinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×