Innlent

Fellibylur gengur yfir Ísland: Útihús gætu splundrast

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Fellibylur gengur nú yfir Ísland. Veðurofsinn hefur þegar náð því að teljast fyrsta stigs fellibylur og er búist fastlega við því að hann vaxi upp í það að verða annars stigs. Um klukkan átta í kvöld má búast við því að fellibylsstyrkur mælist í Reykjavík. 

Kristján Már Unnarsson fréttamaður ræddi yfir fulltrúa frá almannavörnum og Landsbjörgu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Fólk hefur farið að tilmælum

Hjálmar Björgvinsson frá Almannavörnum segir veðurspár hafa gengið eftir. „Já já þetta er að ganga eftir og við erum núna með á suðurlandi og vestmanneyjum alveg kolbrjálað eða vitlaust veður,“ segir hann. Samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingum færist þetta yfir höfuðborgarsvæðið og restina af landinu í kvöld,“ segir hann.

Hjálmar segir ljóst að fólk hafi farið eftir aðvörunum og tilmælum lögreglunnar. „Ef við horfum bara hérna út á bústaðarveginn sem dæmi, það er yfirleitt fullt af bílum á þessum tíma en núna er varla bíll. Þannig að fólk hefur hlustað á tilmæli frá okkur um að gera ráðstafanir og þar fram eftir götunum. Fólk er bara viðbúið og því ber að fagna,“ segir hann.

Eiga að halda sig heima

Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir að björgunarsveitarfólk sé í viðbragðsstöðu. „Það eru þessi heilu þök og kannski útihúsin að splundrast og slíkt eins og við sáum í veðrinu ´91. En við svo sem vitum það ekki,“ segir hún. „Við verðum náttúrulega að gæta öryggis okkar fólks.“

Útköll hafa verið fá það sem af er degi.

„Já en minni háttar. Björgunarsveitir eru að störfum austan fjall og á Suðurnesjum en það hefur allt verið svona minni háttar atvik. og fyrr í dag í Vestmannaeyjum líka. Síðan erum við með fólk í húsi víða um land og fólk að koma í hús annars staðar. Við bíðum eftir skellinum,“ segir hún.

Ólöf segir að fólk eigi bara að halda sig innandyra. „Heima í örygginu og hringja í 112 ef það er neyðarástand einhvers staðar,“ segir hún aðspurð um ráðleggingar til landsmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×