Fótbolti

Guðbjörg norskur bikarmeistari

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðbjörg Gunnarsdóttir.
Guðbjörg Gunnarsdóttir. vísir/getty
Lilleström varð í dag norskur bikarmeistari kvenna í knattspyrnu en liðið vann Íslendingaliðið Avaldsnes í úrslitaleiknum 3-2.

Guðbjörg Gunnarsdóttir er markvörður Lilleström og var hún allan leikinn í marki liðsins.

Hólmfríður Magnúsdóttir byrjaði leikinn á bekknum hjá Avaldsnes en kom inn á 63. mínútu leiksins. Þórunn Helga Jónsdóttir var ekki í leikmannahópi Avaldsnes.

Isabell Herloves gerði sigurmark leiksins korteri fyrir leikslok. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×