Fótbolti

Langþráður sigur hjá Vålerenga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elías Már var í byrjunarliðinu í kvöld.
Elías Már var í byrjunarliðinu í kvöld. vísir/stefán
Elías Már Ómarsson var í byrjunarliði Vålerenga sem vann 0-1 útisigur á Mjondalen í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Finnski varnarmaðurinn Enar Jääger skoraði eina mark leiksins á 22. mínútu.

Þetta var langþráður sigur hjá Vålerenga eftir fjóra tapleiki í röð. Liðið er með 39 stig í 6. sæti deildarinnar.

Elías Már, sem var tekinn af velli á 70. mínútu, hefur leikið 11 leiki í deildinni á tímabilinu og skorað þrjú mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×