Fótbolti

Nýbakaði faðirinn Messi í leikmannahóp Barcelona á morgun

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Lionel Messi, leikmaður Barcelona.
Lionel Messi, leikmaður Barcelona. Vísir/getty
Lionel Messi, leikmaður Barcelona og argentínska landsliðsins, eignaðist sitt annað barn í dag þegar eiginkona hans eignaðist ungan dreng.

Messi sem á fyrir tveggja ára son að nafni Thiago er í leikmannahóp Barcelona sem ferðast til Madrid en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í dag.

Messi hefur látið fara lítið fyrir sér í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins sem hafa báðir unnist 1-0 en Messi er ekki enn kominn á blað.

Leikur Atletico Madrid og Barcelona hefst klukkan 18.30 á Vicente Calderon og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport HD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×