Jón Daði fiskaði vítaspyrnu sem tryggði Viking sigur Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. apríl 2015 17:51 Jón Daði Böðvarsson hafði mikil áhrif á leikinn. mynd/viking-fk.no
Viking Stavanger vann góðan útisigur á Sandefjord, 2-1, í fimmtu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á útivelli í kvöld. Enginn Íslendingur var í byrjunarliði Viking sem þykir tíðindum sæta, en fjórir slíkir eru á mála hjá liðinu. Björn Daníel Sverrisson er meiddur langt fram á tímabilið, Indriði Sigurðsson er frá vegna meiðsla og þeir Jón Daði Böðvarsson og Steinþór Freyr Þorsteinsson byrjuðu á bekknum. Íslendingalausir Víkingar komust yfir með marki Suleiman Abdullahi á 46. mínútu en heimamenn í Sandefjord jöfnuðu metin, 1-1, á 79. mínútu. Jón Daði Böðvarson kom inn á sem varamaður fyrir markaskorarann Abdullahi og fiskaði vítaspyrnu á 82. mínútu sem Veton Berisha skoraði sigurmarkið úr, 2-1. Steinþór Freyr Þorsteinsson kom einnig inn á sem varamaður og reyndi eitt flikk-flakk innkast. Enginn Íslendingur var heldur í byrjunarliðinu í Íslendingaslag Vålrenga og Álasunds. Elías Már Ómarsson var á bekknum hjá heimamönnum og Daníel Leó Grétarsson hjá gestunum, en Aron Elís Þrándarson hefur ekki enn spilað leik vegna meiðsla. Vålerenga komst yfir með marki Niklas Gunnarsson á 43. mínútu en Leke James og Sakari Mattila skoruðu fyrir gestina á 76. og 81. mínútu og tryggðu Álasundi fyrsta sigur liðsins í deildinni. Viking er í níunda sæti sex stig eftir fimm umferðir, Vålerenga í þriðja sæti með tíu stig og Álasund í 14. sæti með fjögur stig.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira