Innlent

Björk á meðal 100 áhrifamestu einstaklinga heims

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Bandaríska tímaritið Time hefur birt árlegan lista sinn yfir áhrifamesta fólk í heimi. Á listanum er að finna nafn Bjarkar Guðmundsdóttur.
Bandaríska tímaritið Time hefur birt árlegan lista sinn yfir áhrifamesta fólk í heimi. Á listanum er að finna nafn Bjarkar Guðmundsdóttur. Vísir/Getty Images
Björk Guðmundsdóttir er ein af 100 áhrifamestu persónum heims, að mati tímaritsins Time. Það er serbneska listakonan Marina Abramović sem skrifar umsögn um Björk.

Í umsögninni segir Abramovich frá því þegar gosið hófst í Eyjafjallajökli árið 2010 hafi Björn sent henni tölvupóst og sagt: „Ég er svo stolt að segja þér að litla eldfjallið okkar hefur fæðst – það er svo fallegt!“

Tónlistarmaðurinn Kanye West prýðir forsíðu blaðsins þar sem listinn er birtir en það er frumkvöðullinn Elon Musk sem skrifar um hann umsögn.

Meðal annarra á listanum er Tim Cook, forstjóri Apple, Koch-bræðurnir, leikkonurnar Laverne Cox og Emma Watson, þýski kanslarinn Angela Merkel og Xi Jinping, forseti Kína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×