Fimmti leikurinn í röð án sigurs hjá Nordsjælland | Einum fleiri í klukkutíma Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. nóvember 2014 20:13 Ólafur H. Kristjánsson er á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari Nordsjælland. Facebook-síða Nordsjælland
Lærisveinar Ólafs H. Kristjánssonar í Nordsjælland gerðu markalaust jafntefli gegn FC København á heimavelli sínum, Farum Park, í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fyrir leikinn var FCK með tveimur stigum meira en Nordsjælland, en gestirnir frá Kaupmannahöfn urðu fyrir miklu áfalli á 32. mínútu þegar hinum þrautreynda Christian Poulsen var vísað af velli með rautt spjald. Rúrik Gíslason var í kjölfarið tekinn af velli fyrir varnarmanninn Daniel Amartey. Þrátt fyrir að vera einum fleiri í tæpan klukkutíma tókst leikmönnum Nordsjælland ekki að tryggja sér sigurinn, en liðið hefur nú leikið fimm leiki í röð án þess að vinna. Eftir leikinn í kvöld eru Ólafur og félagar í 6. sæti með 21 stig, tveimur minna en FCK sem er í 3. sæti. Midtjylland er langefst í deildinni með 34 stig, tíu stigum meira en Randers sem er í öðru sæti. Rúnar Alex Rúnarsson og Adam Örn Arnarson sátu allan tímann á varamannabekk Nordsjælland í kvöld. Fyrr í dag unnu nýliðar Hobro öruggan 3-0 sigur á Brøndby á heimavelli. Hólmbert Aron Friðjónsson lék síðustu 25 mínútur leiksins fyrir Brøndby sem er í 5. sæti með 21 stig. Hobro er tveimur sætum neðar með 20 stig.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira