Guðjón lagði upp sigurmark Halmstad Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2013 17:27 Guðjón Baldvinsson. Mynd/Stefán
Guðjón Baldvinsson átti mikinn þátt í gríðarlega mikilvægum sigri Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en Halmstad vann þá 1-0 sigur á Öster á útivelli. Þetta var lífsnauðsynlegur sigur fyrir Halmstad í fallbaráttu sænsku deildarinnar. Mikael Boman skoraði eina mark leiksins á 40. mínútu eftir stoðsendingu frá Guðjón Baldvinssyni. Þetta var fjórða stoðsending Guðjóns í sænsku deildinni á tímabilinu en hann hefur skorað þrjú mörk sjálfur. Halmstad var búið að tapa 0-1 í tveimur leikjum í röð og átti á hættu á því að missa Öster langt fram úr sér með tapi í þessum leik. Öster situr samt áfram í síðasta örugga sæti deildarinnar. Halmstad er sem fyrr í þriðja neðsta sæti deildarinnar en nú er liðið aðeins einu stigi á eftir Öster. Liðið í þriðja neðsta sætinu fer í umspil við lið úr b-deildinni um laust sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Halmstad er ennfremur með þriggja stiga forskot á Brommapojkarna sem er með lakara markahlutfall en á leik inni um helgina. Guðjón fékk heiðursskiptingu tveimur mínútum fyrir leikslok en Kristinn Steindórsson sat hinsvegar allan tímann á bekknum hjá Halmstad.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira